153. löggjafarþing — 55. fundur,  25. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langar aðeins í seinna andsvari að koma inn á tengt mál sem snýr einmitt að þessum töfum á ábyrgð umsækjanda og snertir sérstaklega atriði sem nú lítur öðruvísi út en áður hvað frumvarpið varðar. Það er til að mynda atriði sem snýr að Covid-prófum sem voru ekki framkvæmd eða framkvæmanleg á þeim tíma sem takmarkanir voru miklar, annaðhvort á Íslandi eða erlendis.

Telur hv. þingmaður ósanngjarnt að ef einstaklingur sem hefur fengið höfnun á umsókn sinni kemur sér undan því, við skulum bara orða það þannig, að fara erlendis með því að mæta ekki í Covid-próf á þessu tímabili, þá sé það metið til tafa vegna ákvarðana eða aðgerða þess sem um ræðir?

Kannski er það harðneskjulegt viðhorf, ég átta mig ekki á því, en það er þó alla vega mitt viðhorf, að það hljóti að vera á ábyrgð þess sem hefur sótt um vernd hér en ekki fengið að vinna að ákveðnu marki með stjórnvöldum til að ljúka máli sínu. Inni í því hlýtur til að mynda að falla atriði eins og að uppfylla skyldu um Covid-próf í þessu tilviki, að einstaklingur þurfi að vinna með slíkum ákvörðunum.

Spurning mín til hv. þingmanns er: Telur hv. þingmaður að þetta sé ósanngjörn nálgun eins og þetta horfir við mér? Og hvernig ættu stjórnvöld þá að leysa þá stöðu á meðan verið er að vinna eftir reglunum eins og þær eru núna?