fjárframlög til heilbrigðismála.
Virðulegi forseti. Formaður Læknafélagsins lýsti stöðunni í heilbrigðiskerfinu í viðtali fyrir áramót með eftirfarandi hætti, með leyfi forseta:
„Þessi málaflokkur er gríðarlega undirfjármagnaður og við höfum áhyggjur af því að ráðherra nái ekki sínum málum fram að óbreyttu. Það eru ekki fjárheimildir til að ráðast í neitt átak til að bæta stöðuna en það er akkúrat það sem þarf.“
Nýjasta taktíkin hjá hæstv. heilbrigðisráðherra, í anda taktíkur hæstv. fjármálaráðherra, er að vísa svona gagnrýni bara á bug, segja að það vanti staðreyndir inn í umræðuna og telja upp samhengislausa milljarða. Ekki er rætt um hvar flöskuhálsar liggja í kerfinu og hvernig stendur til að losa um þá. Sá stærsti snýr að legurýmum. Hér virðist hæstv. ráðherra úrræðalaus. Annaðhvort fær hann ekki fjármagn, kemur fjármagninu ekki í verk eða treystir sér ekki til ákvarðanatöku. Núgildandi áætlanir sýna mjög takmarkaðar breytingar á þessari stöðu.
Förum yfir nokkrar umræddar staðreyndir. Stór hluti legurýma á Landspítalanum er nýttur í öldrunarþjónustu vegna þess að hjúkrunarheimili og uppbygging þeirra hefur verið vanfjármögnuð, sem bitnar á allri heilbrigðisþjónustu í landinu og setur eldra fólk í landinu í algerlega ómannúðlega stöðu. Það er líka staðreynd að eftir árið 2023 er nær ekkert fjármagn í fjármálaáætlun fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila og líka er það staðreynd að samkvæmt skýrslu McKinsey er nýr Landspítali nú þegar sprunginn hvað varðar legurými, bæta þarf við 240 langtímaumönnunarúrræðum til að spítalinn springi ekki samkvæmt skýrslunni. Önnur staðreynd er sú að samkvæmt núverandi fjármálaáætlun vantar 504 hjúkrunarrými til ársins 2027 til þess eins að halda í núverandi horfi, halda við óbreyttu ástandi, en sama áætlun fjármagnar ekki nema 360 slík rými.
Því spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra: Hvers má vænta frá heilbrigðisráðuneytinu í fjármálaáætlun sem verður lögð fram í vor og telur hæstv. ráðherra að hann nái þeim tillögum í gegn?