153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

stefna í sjávarútvegsmálum.

[10:43]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Mér fannst Verbúðin alveg frábær, mjög mikilvægt að menningin sé þátttakandi í samfélagsumræðunni og mér fannst það einstaklega vel gert í þessum þáttum sem vakti okkur auðvitað til vangaveltna og spurninga um ákvarðanir sem voru teknar á vettvangi stjórnmálanna á sínum tíma, bæði hér í þinginu en ekki síður á vettvangi sveitarfélaganna og þeirra sem áttu fyrirtækin á þeim tíma. En af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um tillögurnar sem eru í samráðsgátt stjórnvalda núna, og ég vil hvetja fólk til að skoða og gera athugasemdir við, þá eru þær um 60 og eru í raun og veru þannig að þær mynda ekki heildstætt nýtt kerfi heldur koma þarna fram tillögur sem mögulega draga fram valkosti, eins og til að mynda valkosti sem varða það sem kallað er félagslega kerfið eða 5,3%. Þar er líka dreginn fram sá valkostur að færa á milli þeirra potta sem þar eru til að styrkja strandveiðiþáttinn. Samráðsnefndin sem heldur utan um allar tillögur þessara undirhópa er að fara að funda núna á næstu vikum og ég hvet fulltrúa Flokks fólksins til þess að taka þátt í þeirri vinnu en við munum á næstu vikum fara yfir þessar tillögur. Við byrjum á þeim tillögum sem lúta að auðlindinni sem slíkri og síðan efnahagsþættinum og loks að hinum félagslega. Það er spennandi vinna fram undan og ég treysti því að Flokkur fólksins sé tilbúinn að taka þátt í henni.