stefna í sjávarútvegsmálum.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður spyr um kostnað við vinnuna. Ég er ekki með þær tölur á hraðbergi en hvet hv. þingmann til að leggja fram skriflega fyrirspurn um það því að þau gögn liggja öll fyrir. Þetta er auðvitað gríðarlega víðfeðm vinna og það er sannarlega rétt sem hv. þingmaður nefnir að hún er umfangsmeiri heldur en hefur verið lagt upp í áður vegna þess að við erum að freista þess að reyna að ná utan um umhverfisþáttinn, efnahagslega þáttinn og félagslega þáttinn í þessu kerfi, freista þess að reyna að ná meiri samfélagslegri samstöðu um verkefnið. Mér finnst samskipti samfélagsins við sjávarútveginn verðskulda að við reynum að gera þetta með eins breiðum og víðtækum hætti og hægt er. Tímaáætlunin hefur staðist hingað til og ég vonast auðvitað til þess að hún geri það áfram. Það er ekki útlátalaust en enn þá er það þannig (Forseti hringir.) að mér hafa fyrst og fremst fylgt góðar óskir í þessu verkefni.