losun gróðurhúsalofttegunda.
Herra forseti. Ég heyri að ráðuneytið er ekkert að gera til að rannsaka þessi mál en er engu að síður tilbúið til að gefa út hinar ýmsu yfirlýsingar, alþjóðlega og hér innan lands, og leggja sífellt nýjar kvaðir á allan íslenskan almenning og þar með talið bændur, en það hefur verið sótt að bændum í tíð þessarar ríkisstjórnar úr ýmsum áttum. Þegar verið er að leggja nýjar og nýjar kvaðir á almenning og gefa út tilkynningar þá skyldi maður ætla að það þyrfti að liggja fyrir skýr niðurstaða um áhrifin, um það við hvað er verið að fást. En svo er ekki. Það held ég að sé að miklu leyti vegna þess að þessi málaflokkur, loftslagsmálin, hefur orðið fórnarlamb sýndar- og umbúðamennsku í stjórnmálum. Ég hvet því hæstv. ráðherra til að ráðast í alvöru rannsóknir á þessu. Vinnan á Hvanneyri er vissulega mjög góð og æskileg en þegar stjórnvöld eru að leggja línurnar í svona stóru máli verða þau að vita um hvað þau eru að tala.