losun gróðurhúsalofttegunda.
Virðulegur forseti. Það má líka nefna í þessu samhengi það verkefni sem kennt hefur verið við loftslagsvænan landbúnað, sem er ekki lausnin en er hluti af henni, sem er mjög mikilvægt verkefni til að finna lausnir í eðli sínu sem síðan væri hægt að hanna áfram til þess að vita hvar okkur skortir verkfæri og fara síðan á dýptina með takmörkuðum hópi bænda sem eru viljugir til að fara í slík verkefni. Þeir eru þó nokkrir og þeim fer fjölgandi því að það er mikill áhugi á loftslagsmálum hjá bændum og mikill áhugi á því að það séu innbyggðir hvatar í búvörusamninga og í okkar kerfi til að ýta landbúnaðinum áfram í loftslagsvæna átt. Umhverfisstofnun er sú stofnun sem heldur utan um loftslagsbókhaldið okkar í heild þannig að ég held að það sé full ástæða til að líta í þá átt eftir þeim gögnum sem til eru og þeim mælitækjum sem þegar liggja fyrir.