samkeppni á matvælamarkaði.
Virðulegur forseti. Ég er aðallega bara glöð með það — þetta er hálfkæringur — að hugtakið spretthópur hafi náð að komast á blað sem orð ársins 2022. Ég held að það að ná utan um tiltekið afmarkað verkefni og gefa því stuttan tíma sé eitthvað sem við ættum að gera oftar og ég held að það hafi gefist vel þarna. Niðurstaðan varð sú að ráðstafa 2,5 milljörðum til að koma til móts við hækkun á afurðaverði og eins og hv. þingmaður nefnir hér þá skilaði spretthópurinn í raun og veru bæði þessum áþreifanlegu tillögum en líka tillögum sem lutu að ákveðnu umhverfi, ef svo má segja, þeirra framleiðenda sem hafa verið að horfa til þess um nokkurt árabil að þeir hafi lakara svigrúm til hagræðingar og starfsemi en tíðkast í okkar nágrannalöndum. Það er í raun og veru áskorunin.
Þegar ég set síðan frumvarpið í samráðsgátt og fæ umsagnir, ekki bara frá Samkeppniseftirlitinu heldur líka frá Alþýðusambandinu og fleiri aðilum, auðvitað Bændasamtökunum og fleirum, þá er það mín niðurstaða að það þurfi að vinna þetta mál betur. Ég held að það sé eitthvað sem við ættum að gera oftar ef það kemur til þess að við fáum inn sjónarmið sem við teljum að þurfi að taka afstöðu til. Ég mun áfram beita mér fyrir því, og það er alveg á hreinu, að innlendir framleiðendur hafi ekki lakara svigrúm til hagræðingar en tíðkast í okkar nágrannalöndum og ég held að sú leið sem horft er til, að heimila fyrirtækjum í meirihlutaeigu framleiðenda að vera hluti af því að skapa slík skilyrði, sé eitthvað sem við gætum gert. Þá erum við í raun og veru að tryggja þessa jafnstöðu. Öruggir umhverfisvænir framleiðendur sem búa við góð skilyrði eru auðvitað líka neytendum í hag en það hefur verið eitt af mínum áherslumálum sem matvælaráðherra að horfa á heildarmyndina, ekki bara hinar hefðbundnu (Forseti hringir.) atvinnugreinar sem við erum vön að horfa til heldur allrar keðju fæðukerfisins í anda nútímalegrar hugmyndafræði.