samkeppni á matvælamarkaði.
Herra forseti. Ég ætla að reyna að beina augum aftur að tollafyrirkomulaginu. Eins og það hefur þróast þá virkar þetta sem verndaraðgerð fyrir innlenda framleiðslu frekar en aðgerð sem á að bæta hag heimila í formi verðsamkeppni og gæðasamkeppni. Eftir sitja heimilin með neikvæð áhrif af einokun og þeim er ekki treyst til að taka sjálfum ákvörðun um hvaða vörur þau kjósa að kaupa og borða. Og það er ekki bara þessi verðvernd, sem er í gangi í boði stjórnvalda, sem hindrar þau vegna þess að það eru líka dæmi um að innlendir kjöt- og mjólkurvöruframleiðendur bjóði hátt verð í kvótana, kaupi þá og flytji viðkomandi vöru ekki inn. Ég veit, og það hefur komið fram í fréttum, að ákveðin stéttarfélög hafa gert bókanir við kjarasamninga sína þar sem óskað er eftir því að stjórnvöld fari í vinnu við að afnema og lækka tolla í þágu neytenda, í þágu heimila. Það er ein skilvirkasta leiðin til að bæta hag heimila. Að mati þessara aðila sem hafa bókað væri góð byrjun að afnema tolla sem vernda enga hefðbundna innlenda landbúnaðarframleiðslu. Spurning mín er einfaldlega: Hefur hæstv. ráðherra kjark til að fara í þessar aðgerðir í þágu heimila landsins?