153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

samkeppni á matvælamarkaði.

[11:01]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn spurninguna. Tollkvótum er úthlutað samkvæmt ákvæðum búvörulaga og tollalaga. Við gerðum breytingar hér í þinginu á árinu 2019 á búvörulögum og innleiddum þar með nýtt kerfi til að úthluta tollkvóta. Það frumvarp var unnið á grundvelli tillagna starfshóps um endurskoðun á regluverki um úthlutun tollkvóta. Markmið þessara breytinga á sínum tíma hér fyrir þinginu var að stuðla að auknum ábata neytenda og aukinni samkeppni á markaði með landbúnaðarvörur en um leið að gæta að hagsmunum innlendra framleiðenda. Það er þessi jafnvægislist. Ein úthlutun fór fram á árinu 2020 samkvæmt þessu nýja fyrirkomulagi en tímabundið var svo horfið til eldra kerfis á tíma heimsfaraldurs og svo var þetta tekið upp að nýju haustið 2022. Það má segja að það sé takmörkuð reynsla af þessu nýja kerfi en ráðuneytið fylgist mjög grannt með þessu; þróun útboðsverðs, eftirspurn eftir tollkvótum, aðstæðum á markaði o.s.frv. Þegar við fáum betri reynslu á þetta fyrirkomulag er hægt að meta með heildstæðum hætti hvort það nær markmiðum sínum. Eins og nú er er það snúið að hafa í raun og veru ekki reynsluna nægilega skýra fyrir framan sig en það verður sannarlega gert og horft til þeirra hagsmuna sem hv. þingmaður er hér að nefna.