frumvarp um útlendinga.
Forseti. Enn og aftur er Alþingi með til umfjöllunar skaðræðisfrumvarp dómsmálaráðherra um aðför að fólki á flótta, svokallað útlendingafrumvarp. Breytingin sem varð þetta misserið er sú að þingflokkur Vinstri grænna og ráðherrar flokksins hleyptu málinu fyrirvaralaust til þingsins, gerðu engan fyrirvara við afgreiðslu málsins. Þetta skýtur dálítið skökku við í ljósi þess að allar umsagnir sérfræðinga og fagaðila eru á sama veg og öll hin síðustu skiptin, að það sé margt slæmt í þessu frumvarpi. En nú hefur bæst við grasrótarhreyfingin Fellum frumvarpið, sem kallar eftir því að málið verði dregið til baka og unnið upp á nýtt í samstarfi við fagaðila þar sem virðing fyrir jafnrétti og mannréttindum eru höfð í hávegum. Að þessari grasrótarhreyfingu standa ýmis ungmennasamtök, þar á meðal ungmennahreyfing Vinstri grænna, Ung vinstri græn, flokks hæstv. ráðherra. Ráðherrann hefur lýst einhverjum efasemdum og áhyggjum af málinu við fjölmiðla en átti ekki heimangengt til að taka þátt í 1. umr. um málið. Fulltrúar ráðherra hafa mætt á lokaða fundi allsherjar- og menntamálanefndar til að lýsa einhverjum formlegum efasemdum við málið. Mig langar við þetta tækifæri að gefa ráðherra einfaldlega tækifæri til þess að ræða afstöðu sína gagnvart frumvarpinu hér í ræðustól, í augsýn almennings, í augsýn Ungra vinstri grænna sem skora á ráðherrann að draga málið til baka.