153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

frumvarp um útlendinga.

[11:05]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Mig langar að byrja á því að koma inn á það með hvaða hætti þetta frumvarp hefur tekið breytingum, enda búið að leggja það fjórum eða fimm sinnum fram á þinginu. Það voru mjög mikilvægar breytingar sem voru gerðar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi, og það er náttúrlega langstærsta breytingin áður en frumvarpið kom hér inn í þingið núna síðast, að halda þeirri heimild inni í lögunum að taka megi mál til efnismeðferðar þó svo að fólk hafi fengið vernd í öðru ríki. Þetta var atriði sem ekki bara Vinstri græn höfðu lagt þunga áherslu á, í fyrri meðförum þingsins á málunum sem hér höfðu komið inn, heldur líka margir aðrir þingmenn. Þetta er farið út, sú breyting sem átti að gera þarna, og það er auðvitað fyrir tilstilli Vinstri grænna. Ef hv. þingmaður er ekki búinn að átta sig á því þá veit hann það núna. Það fór út umdeilt atriði sem m.a. Læknafélag Íslands gerði alvarlegar athugasemdir við og félagið hefur reyndar fagnað þeim breytingum. Það má líka nefna að eftir að frumvarpið var sett í samráðsgátt í lok janúar 2022 og þangað til það síðan kom fram um vorið voru gerðar jákvæðar breytingar sem fjölluðu um 30 daga regluna, t.d. að til viðbótar við að ekki væri heimilt að fella niður réttindi barna þá ætti það líka að ná til foreldra eða umsjónarmanna þeirra, að alvarlega veikir einstaklingar og fatlaðir einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir ættu ekki að sæta skerðingu á þjónustu og margt fleira. Það urðu því svo sannarlega jákvæðar breytingar á þessu máli og það var fyrir tilstilli Vinstri grænna, það vitum við öll. Málið hefur síðan verið og er til þinglegrar meðferðar hjá Alþingi og ég geri bara ráð fyrir því að sú vinna haldi áfram núna milli 2. og 3. umr., því mér skilst að það sé búið að kalla málið inn.