frumvarp um útlendinga.
Herra forseti. Vegna þess að hæstv. ráðherra talar um jákvæðar breytingar er kannski rétt að halda því líka til haga að þrátt fyrir allar breytingar sem hafa orðið á málinu til þessa dags þá er hver einasta umsögn um það neikvæð. Hver einasti sérfræðingur segir að þetta mál sé ekki gott. Og þó að Vinstri græn hafi náð að kría burt eitt ákvæði þá standa eftir svona sjö í viðbót sem eru alveg jafn slæm. En það að flokkurinn hafi látið af öllum fyrirvörum um málið út af þessu eina atriði finnst mér frekar benda til þess að rýnin hafi ekki verið sérstaklega djúp innan þingflokksins. Ráðherrann svaraði því ekki hver væri afstaða sín gagnvart frumvarpinu hér í sínu fyrra svari, hann gerir það kannski í seinna skiptið, en með því að hafa hleypt því fyrirvaralaust í gegnum þingflokk og ríkisstjórn þá reikna ég með að hann styðji það óbreytt.
En út af þessari, mig langar að segja hringavitleysu varðandi það að kalla málið inn milli 2. og 3. umr. frekar en að hafa gert breytingar á því í síðustu viku ef ástæða var til, þá held ég að við eigum heimtingu á því að vita hvaða breytingar það eru sem Vinstri græn sjá fyrir sér að verði gerðar á frumvarpinu milli 2. og 3. umr., ef einhverjar.