Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra fyrir þessa sérstöku umræðu um ferðaþjónustuna á Íslandi í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Ferðaþjónustan er okkar stærsta útflutningsgrein, stendur undir hátt í 40% af útflutningstekjum og er af svipaðri stærðargráðu, ef ekki stærri, en áliðnaður og sjávarútvegur samanlagt. Þessi grein er og verður áfram ein helsta undirstaða hagvaxtar hér á landi. Síðasta ferðamannaár var það fimmta stærsta frá upphafi. Svo veigamiklum breytingum á efnahagslífinu og við höfum séð með vexti ferðaþjónustunnar fylgja óhjákvæmilega vaxtaverkir. Þessi umræða hér í dag er því liður í því að varpa ljósi á þessa þróun og stefnu stjórnvalda í málaflokknum.
Sú hlutfallsbreyting sem átt hefur sér stað á milli einstakra útflutningsgreina á undanförnum árum sýnir að okkur hefur tekist að fjölga eggjunum í körfunni. Það er vel. En eins og við þekkjum þá hafði heimsfaraldur kórónuveiru gríðarleg áhrif á ferðaþjónustuna umfram aðrar útflutningsgreinar. Í því samhengi má velta því upp hvort greinin sé í raun orðin hlutfallslega of stór enda áhrif áfalla eins og heimsfaraldurs, nú eða hruns fiskstofns, þeim mun meiri eftir því sem stoðin er stærri.
Það er gleðilegt að aðgerðir stjórnvalda í þágu ferðaþjónustunnar sem greinar vegna heimsfaraldursins tryggðu að hægt er að mæta áframhaldandi áhuga fólks á að koma og skoða Ísland. Ferðaþjónustan virðist hafa rétt hratt og örugglega úr kútnum þrátt fyrir áfallið sem á dundi.
Fyrir heimsfaraldur kórónuveirunnar sáum við mikinn vöxt í greininni, vöxt sem ekkert lát virðist vera á nú þegar hið versta er yfirstaðið. Birtingarmyndin er m.a. í stórauknum fjölda þeirra skemmtiferðaskipa sem komu hingað til lands á síðasta ári eða hyggja á komu hingað á þessu ári. Samkvæmt Ferðamálastofu heimsóttu 80 skemmtiferðaskip Faxaflóahafnir í 184 ferðum á síðasta ári, alls 169.526 farþegar af þeim rúmlega 448.000 farþegum sem heimsóttu landið með þessum hætti, þ.e. með skemmtiferðaskipum. Fjöldi væntanlegra farþega með skemmtiferðaskipum hingað til lands á þessu ári er 812.000 samkvæmt sömu heimild. Það gera ríflega þúsund komur skemmtiferðaskipa í hafnir víðs vegar um land en Faxaflóahafnir, hafnirnar á Akureyri, í Grímsey og Hrísey sem og Ísafjarðarhöfn munu sjá um 75% allra koma skemmtiferðaskipa á þessu ári. Ef litið er til þróunar í komu skemmtiferðaskipa frá árinu 2017 til ársins í ár hafa skipakomur aukist um 103% og fjöldi farþega aukist um 115% á sama tíma. Þetta er gríðarleg aukning, virðulegur forseti. Þá hefur það færst í aukana að hingað komi ferðalangar flugleiðina til að fara um borð í skemmtiferðaskip eða frá borði til síns heima. Álag á innviði er því mikið og er að stóraukast miðað við þessar tölur, álag á hafnir, flugvelli, samgönguinnviði, heilbrigðisþjónustu og almannavarnakerfi, svo að ekki sé minnst á innviði sem eiga að tryggja vernd íslenskrar náttúru. Langflestir þeirra ferðamanna sem sækja landið heim gera það vegna íslenskrar náttúru. Kostnaður við uppbyggingu, rekstur og viðhald innviða er því mikill.
Í þessu samhengi velti ég upp nokkrum spurningum sem mig langar að taka hér til sérstakrar umræðu. Það hefur lengi verið rætt um sérstaka gjaldtöku í ferðaþjónustu, svo sem komu- eða brottfarargjald, hærri gistináttaskatt eða svokallaðan náttúrupassa. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sjái fyrir sér frekari gjaldtöku af ferðamönnum og ef svo er, hvenær hann hyggist hrinda þeim í framkvæmd. Hvaða leiðir telur ráðherra heppilegastar til að vernda náttúruna gegn ágangi ferðamanna? Finnst ráðherra koma til greina að takmarka aðgengi á einstaka ferðamannastöðum, til að mynda með ítölu? Nýlega sáum við í fréttum hvernig Grundarfjarðarbær hefur sett sér ákveðið hámark á móttöku ferðamanna með skemmtiferðaskipum. Hvaða aðrar leiðir sér ráðherra færar til verndar náttúrunni? Sér ráðherra fyrir sér sérstakar kröfur til uppbyggingar innviða á ferðamannastöðum með tilliti til gæðaviðmiða og aðgengis, svo sem fatlaðs fólks?
Samanber það sem ég fór yfir á undan, virðulegur forseti, þá stefnir allt í að fjöldi farþega á skemmtiferðaskipum muni aukast verulega á næstu árum. Mig langar því að endingu að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann sér fyrir sér að þessum vænta stóraukna fjölda verði mætt, ekki síst með tilliti til aukins álags á heilbrigðiskerfið og almannavarnakerfið.