153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.

[11:15]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að setja ferðaþjónustu á dagskrá hér á Alþingi í sérstakri umræðu. Varðandi fyrstu spurningu hv. þingmanns um gjaldtöku þá kemur fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að samhliða endurreisn ferðaþjónustunnar muni fyrirkomulag gjaldtöku í greininni verða tekið til skoðunar. Einnig kemur þar fram að horft verði til þess að breikka skattstofninn, tryggja jafnræði aðila á markaði og að unnið verði að breytingum á fyrirkomulagi gistináttagjalds með það að markmiði að sveitarfélögin njóti góðs af gjaldtökunni. Við höfum þegar hafið undirbúning þessarar vinnu um fyrirkomulag gjaldtöku innan ráðuneytisins og er það eitt af þeim verkefnum sem eru í forgangi í mínu ráðuneyti.

Virðulegi forseti. Árið 2019 var kynntur stefnurammi um framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu til ársins 2030 með helstu áherslum. Innan míns ráðuneytis höfum við undanfarna mánuði og vikur verið í vinnu með lykilaðilum að uppfæra þennan stefnuramma. Sú uppfærsla tekur mið af þróuninni frá árinu 2019, áherslum í stjórnarsáttmála, alþjóðlegum straumum og stefnum ásamt áherslum í nýlegum stefnum stjórnvalda, samanber loftslagsstefnu, orkustefnu, nýsköpunarstefnu. Það sem við erum að gera er að við erum að taka þetta allt inn í eina stefnu, þ.e. ferðamálastefnu til ársins 2030. Þar sem ferðaþjónustan hefur vaxið mjög mikið og kemur við flesta þætti samfélagsins þarf að taka mið af öðru sem er búið að gera til þess að það verði samfella í því sem stjórnvöld eru að gera. Þessu verður svo fylgt eftir með aðgerðaáætlun sem ráðgert er að leggja fyrir Alþingi sem tillögu til þingsályktunar í byrjun haustþings 2023. Undirbúningur er hafinn að þessari aðgerðaáætlun og við sjáum fyrir okkur að hún verði að sjálfsögðu unnin í víðtæku samráði við ferðaþjónustuna og aðra hagaðila og skili sér þannig hingað inn á Alþingi.

Er varðar gjaldtöku í ferðaþjónustu er hún að sjálfsögðu samspil ólíkra þátta og við sjáum það vel þegar við skoðum hvernig fyrirkomulagið er hjá öðrum þjóðum. Hér má nefna gistináttagjald, virðisaukaskatt, tekjuskatt fyrirtækja, komugjöld, brottfarargjöld, bílastæðagjöld, aðgang í þjóðgarða, leyfisgjöld, gjaldtöku af skemmtiferðaskipum o.s.frv. Við höfum að undanförnu verið að afla upplýsinga um hvernig samsetning annarra þjóða er á þessum þáttum í gjaldtöku í ferðaþjónustu. Það sem við erum helst að horfa á þessa dagana er gistináttagjaldið og gjaldtaka á skemmtiferðaskipum. Það er hins vegar mjög mikilvægt að skoða öll þessi gjöld, sem við höfum verið að gera, til að gæta að samkeppnishæfni Íslands og að okkar fyrirkomulag gjaldtöku á ferðaþjónustu sé skynsamlegt, skilvirkt og sanngjarnt.

Eftir mikinn samdrátt í heimsfaraldri er ferðaþjónustan aftur orðin sú atvinnugrein sem skapar mestan erlendan gjaldeyri fyrir þjóðarbúið. Síðustu fjóra ársfjórðunga skilaði greinin 411 milljörðum kr. í útflutningstekjur eða tæpum fjórðungi heildarútflutningstekna þjóðarbúsins. Hins vegar eru ýmsar blikur á lofti sem gætu haft áhrif á eftirspurn frá okkar helstu mörkuðum. Má þá nefna stríð í Evrópu, verðbólgu, hækkandi orku- og olíuverð og yfirvofandi efnahagslægð. Niðurstöður könnunar Ferðamálastofu meðal fyrirtækja í ferðaþjónustu benda til að greinin standi frammi fyrir margvíslegum áskorunum, svo sem jöfnun árstíðasveiflu, innviðatengdum áskorunum og mönnunarvanda. Það er því mikilvægt að ferðaþjónustan fái svigrúm og tækifæri til þess að vaxa enn frekar og áform um gjaldtöku þurfa að taka mið af því. Markmið okkar er sjálfbær uppbygging ferðaþjónustu til lengri tíma sem áframhaldandi lykilstoð í efnahagslífi okkar. Því þarf, virðulegi forseti, að vanda til verka í þessari vinnu um gjaldtöku í ferðaþjónustu með arðsemi, sjálfbærni og samkeppnishæfni greinarinnar til lengri tíma í huga.

Umræða um skattlagningu og gjaldtöku tengist líka inn í hvernig við stýrum álagi og aðgengi að fjölförnum ferðamannastöðum. Ég tel því brýnt að við skoðum þessi gjaldtökumál með heildstæðum hætti og eins og áður segir mun ég síðar á þessu ári kynna tillögur mínar í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðherra að loknu viðamiklu samráði og samtali við hagaðila.