Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.
Herra forseti. Það er margt ákjósanlegt við þessa mikilvægu atvinnugrein sem við ræðum hérna. Fyrirtækin eru ótrúlega fjölbreytt að stærð og gerð, sum risavaxin og mikilvæg fyrir greinina alla en önnur minni og oft sjálfsprottin fjölskyldufyrirtæki. Þegar maður ferðast um landið er auðvitað bara magnað að sjá hvað greinin hefur breytt mörgum þorpum sem hafa átt undir högg að sækja í sannkallaðar perlur, gert þau eftirsóknarverð fyrir ferðamenn en líka aukið lífsgæði íbúanna sem þar búa með framboði af góðum mat og menningu. Það er unun að sjá hvernig það hefur smitað út í vel uppgerð hús í röðum í mörgum bæjum. En það er hins vegar nauðsynlegt að ríkið sjálft komi betur að innviðauppbyggingu um allt land og hjálpi til við að móta greininni framtíðarstefnu þar sem skilgreindir verða ákjósanlegir markhópar og lagt mat á hversu marga ferðamenn landið okkar ber án þess að við sköðum bæði náttúruna en líka greinina sjálfa. Síðan verðum við að fara að komast að niðurstöðu um hvernig við getum staðið að eðlilegri og hóflegri gjaldtöku sem verði sem breiðust sátt um.
En aðeins, herra forseti, um fjölda ferðamanna eða hvort greinin sé orðin stór, eins og hv. málshefjandi nefndi, þá langar mig að benda á að 75% allra íbúa þessa lands, þessa stóra lands, búa á mjög takmörkuðu svæði á suðvesturhorninu. Og þar er líka staðsett stærsta gáttin inn í landið og um hana fara sennilega um 97, 98% allra sem koma til og frá landsins. Þetta hefur leitt til mikillar ofbeitar ferðamanna á litlum afmörkuðum hluta landsins á meðan aðrir landshlutar gætu tekið á móti miklu fleiri ferðamönnum.
Herra forseti. Mér er algerlega hulin ráðgáta af hverju við ráðumst ekki strax í að jafna verð á flugvélaeldsneyti og fáum Isavia, sem við eigum 100%, til þess að byggja frekar upp fyrir norðan og austan í stað þess að einbeita sér algjörlega að Keflavíkurflugvelli.