153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.

[11:23]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka frummælanda og ráðherra fyrir það sem hér hefur verið sagt varðandi okkar stóru og blómlegu búgrein, sennilega þá nýjustu sem við búum að en jafnframt þá tekjuhæstu í gjaldeyri til þessa. Á árinu 2018 held ég að hreinar tekjur ferðaþjónustu hafi skilað 80 milljörðum. Ef maður ber það saman við sitthvað annað þá veltir maður fyrir sér hvort ástæða sé til sérstakrar frekari skattlagningar á slíka búgrein og þá að velja svona aðferð úr litlu gulu hænunni. Allir segja: Ekki ég, ekki ég, þegar hugmynd kom upp um náttúrupassann og svo er það nánast í skjóli nætur hengt um hálsinn á gistihúsaeigendum að þeir skuli bera þetta og sveitarfélögum gefnar sveltivonir um að þaðan skuli koma það sem upp á vantar í skiptingu tekna ríkis og sveitarfélaga. Ég held að þetta sé vanhugsað.

Hugmynd sem ég tók þátt í að ræða hér fyrir nokkrum dögum síðan var að lagðir verði á sérhvert fluggjald sirka 7 ríkisdalir, 5 sterlingspund eða þar um bil. Við vorum komin í 8 eða 9 milljónir farþega sem komu hér í gegn og fengu að lenda hér með tilheyrandi kolefnisspori og öllu fyrir Covid og miðað við að þetta væri lagt á alla sem fengju að lenda hérna — þetta eru smápeningar — þá gætu verið 9 milljarðar á ári sem kæmu þarna inn í formi þess konar álaga. Ég mæli með því að þetta verði skoðað. Gistihús landsins eru núna búin að vera í tveggja ára gíslingu Covid með tilheyrandi eftirköstum og eru síðan skotspónn verkfallsaðgerða sem beinast t.d. eingöngu að gistihúsum í Reykjavík, fyrir ekki svo löngu, og nú er það bara ein gistihúsakeðja sem fær á því að kenna. (Forseti hringir.) Ég hef beðið um að þetta verði endurskoðað en að öðru leyti lýsi ég ánægju minni með blómlega ferðaþjónustu á Íslandi og vaxtarmöguleika hennar til lengri tíma.