153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.

[11:26]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Suðurkjördæmi er einstakt kjördæmi og það eru forréttindi að fá að vera þingmaður þar. Það er það kjördæmi sem tekur á móti flestum ferðamönnum fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Um 80% allra ferðamanna sem heimsækja Ísland koma á Suðurland og um 67% heimsækja Reykjanesið. Það gefur því augaleið að ferðaþjónusta er gríðarlega mikilvæg atvinnugrein í kjördæminu og einmitt vegna þessa hafði heimsfaraldur kórónuveirunnar gríðarleg áhrif hjá mörgum fyrirtækjum, einstaklingum og sveitarfélögum. Í síðustu viku sótti ég viðburðinn Mannamót í Kórnum í Kópavogi þar sem markaðsstofur landshlutanna kynntu fyrirtæki sín í ferðaþjónustu. Það var samdóma álit allra þeirra sem ég ræddi við að ferðaþjónustan væri að ná sínum fyrri styrk. Viðspyrnan hefur verið hraðari en fólk þorði að vona. Á síðasta ári náðum við 85–90% af þeim fjölda ferðamanna sem kom til landsins fyrir faraldur og jafnframt útflutningstekjum upp á um 95%. Það var sömuleiðis samdóma álit fólks að bókunarstaðan fyrir sumarið í ár lofar mjög góðu, svo góðu reyndar að einhverjir nefndu að það yrði verulega krefjandi að halda uppi góðum gæðum. Það er alveg ljóst að greinin hefði ekki verið svo fljót að ná upp sínum fyrri styrk ef ekki hefði komið fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar á þessu tímabili og nær allir segja að stuðningur ríkisins hafi skipt sköpum. Uppgangur ferðaþjónustunnar á síðustu 12–13 árum hefur verið drifkraftur hagvaxtar og bættra lífskjara um land allt. Ferðaþjónustan hefur verið í mörgum byggðum vaxtarbroddur nýrrar atvinnu og þannig treyst búsetu hringinn í kringum landið. Því er mikilvægt að við höldum áfram vinnu við að gera Ísland að áfangastað allt árið um land allt og til að svo megi verða verður að tryggja grunnþjónustu eins og t.d. snjómokstur.