Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.
Frú forseti. Hér er rætt um ágang ferðaþjónustunnar og ferðamanna á íslenskar auðlindir. Orðið sjálfbærni heyrist í hverri ræðu og við vitum að þetta leiðir auðvitað beint til þess að okkar ósnortna náttúra ber skaða af. Við verðum samt að kalla alla hér til ábyrgðar þegar kemur að því að sporna gegn ósjálfbærum ferðamannaiðnaði, ef hann er þá til staðar, og hér erum við að tala um sveitarfélög, landeigendur, fagaðila og ekki síst ríkið sem leggur línurnar með því að mæla fyrir um skattheimtu og gjaldtöku þegar það á við.
Mig langar að nota tækifærið og tala um auðlind sem er allt of sjaldan nefnd á nafn sem slík. Hún er kannski ekki ósnortin en hún er alveg jafn mikilvæg fyrir því. Þetta er vinsælasti áfangastaður ferðamanna á Íslandi. Ég er að tala um höfuðborgina okkar. Við eigum kannski erfitt með að hugsa til höfuðborgarinnar Reykjavíkur, með sínar gráu götur, sem auðlindar sem þarfnast einhverrar sérstakrar verndar. En trúið mér, það þýðir ekki bara að tala um fossa, fjöll og þjóðgarða, það þarf að vernda borgina okkar og ríkið þarf að útvega sveitarfélögunum almennilegar heimildir til að hýsa hér ferðamenn án þess að þeir gangi á auðlindina.
Og hvaða auðlindir, spyr kannski einhver. Jú, 90% ferðamanna dvelja eitthvað á höfuðborgarsvæðinu á meðan á ferð þeirra stendur, 66% þeirra leigja bílaleigubíl. Það eru ansi margir Dacia Duster-ar á nöglum. Þetta veldur að sjálfsögðu álagi á samgönguinnviði okkar og hefur hræðileg áhrif á loftgæði og eðlilegt umferðarflæði. Í nýlegri skýrslu Ferðamálastofu frá síðasta ári, þar sem gerð er grein fyrir mismunandi ferðamátum ferðafólks, vekur athygli að strætónotkun ferðafólks kemst ekki einu sinni á blað yfir algengasta samgöngumátann.
Virðulegur forseti. Hér getur ríkið gripið ákveðið inn í, í samstarfi við borg, byggðasamlög og sveitarfélög, og kallað eftir metnaðarfullri almenningssamgönguvæðingu ferðaþjónustunnar. Eitt er að rafvæða þessa bílaleigubíla. (Forseti hringir.) Hitt verður að koma líka og götur Reykjavíkurborgar eru ekki óþrjótandi auðlind. Að gera ekkert í þessu er ákvörðun.