153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.

[11:42]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu og hæstv. ráðherra fyrir að vera með okkur hér í dag. Við tölum um ferðamannaauðlindina. Ég tek undir með þeim sem áður hafa tjáð sig. Hér hefur margt komið fram sem er nauðsynlegt að ræða og þar á meðal það að við þurfum að jafna flæði ferðamanna um allt land. Þetta er auðlind sem er nauðsynlegt að fái að flæða úti um allt æðakerfi samfélagsins.

Hins vegar langar mig líka að nefna eitt sem ég hef saknað í umræðunni. Það er hvergi nokkurs staðar minnst á það að fatlað fólk eigi að geta ferðast um þetta ágæta land. Það eru hvergi í rauninni aðstæður eða aðgengi, nánast hvergi, fyrir fatlað fólk til að ferðast um landið okkar, því miður. Síðan er það þetta sem ég velti fyrir mér: Hvers lags ofboðslegur valkvíði er þetta í 12 ár að vera ekki enn þá búin að koma á t.d. einhverjum gjöldum til að geta byggt upp innviðina? Ísland er „in“. Við erum mjög vinsæll ferðamannastaður og það er ekkert sem gæti mögulega gæti orðið þess valdandi, þótt við settum 2.000 eða 3.000 kr. á hvern flugfarseðil, sem er náttúrlega á okurverði fyrir, að einstaklingur sem ætlaði að koma til Íslands kæmi ekki, hann gerir það hvort sem er. En það myndi skipta sköpum fyrir okkur.

Það er líka athyglisvert að nú mun margfaldast hér fjöldi skemmtiferðaskipa en við erum ekki enn þá búin að ná að byggja upp almennilega innviði hvað lýtur að því að rafmagnstengja þessi skip í höfnum landsins, ekki enn þá. Þannig að þau spúa hér ekki bara olíu heldur svartolíu. Talið er samkvæmt skýrslu sem við lásum hér eftir þýskan sérfræðing fyrir þremur árum síðan að eitt svona skip að meðalstærð mengaði á við 12.000 bíla á dag. Við erum að tala um loftslagsvá m.a. Ég segi: Það er ástæða til þess í fyrsta lagi að dreifa flæði ferðamanna út um allt land og gefa okkur öllum tækifæri á því að taka þátt í auðlindinni og í öðru lagi verðum við hreinlega að fá fjármagn inn (Forseti hringir.) til að byggja upp innviði sem því miður var ekki gert í þessu Covid-fríi (Forseti hringir.) sem svo oft hefur verið nefnt. (Gripið fram í: Jú, jú, jú, jú.)