Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir að óska eftir þessari umræðu. Upp úr 1950, fyrir rúmum 70 árum, komu 5.000 erlendir ferðamenn til landsins. Metárið 2018 voru erlendir ferðamenn 2,3 milljónir. Í ár, 2023, er spáð nýju metári og spár gera ráð fyrir töluverðri aukningu á næstu árum. Að meðaltali koma jafn margir ferðamenn á dag á þessu ári, ef spár rætast, og komu allt árið 1952. Ferðaþjónustan er orðin einn af höfuðatvinnuvegum þjóðarinnar á tiltölulega skömmum tíma.
Það er rétt að benda á hér að í fjármálaáætlun síðastliðið vor voru kynntar hugmyndir um upptöku ferðamannagjalds um næstu áramót, 2023/2024, sem við tökum þá til seinni umræðu. Það er ljóst að flugrekstur til og frá landinu hefur náð sér hratt á strik á nýjan leik eftir Covid-faraldurinn, mun hraðar en víðast annars staðar. Íslensk ferðaþjónusta á allt undir að millilandaflug til og frá landinu gangi vel fyrir sig. Í því samhengi vil ég benda á mikilvægi þess að innviðir sem tengjast alþjóðaflugvellinum séu til staðar til að tryggja öryggi flugsins og geti tekist á við flugumferðina sem nú þegar er til staðar. Allar spár gera ráð fyrir miklum vexti á næstu árum og áratugum ef spár rætast. Eitt allra mikilvægasta verkefni íslenskrar ferðaþjónustu á þessum tímapunkti er hvernig við getum stuðlað að betri dreifingu ferðamanna um allt land með uppbyggingu í innviðum til að skapa forsendur fyrir að slíkt sé mögulegt. Ég hef í minni pólitík á undanförnum árum, og reyndar löngu áður en ég hóf afskipti af pólitíkinni, talað fyrir því að byggja upp fleiri gáttir inn í landið og þá litið til flugvallanna á Akureyri og Egilsstöðum. Einnig hef ég talað fyrir því að uppbygging Kjalvegar sé einmitt mikilvæg til dreifingar á erlendum ferðamönnum um landið. Meira af því síðar. Það má benda á að 70% af öllum erlendum ferðamenn sem koma til landsins leigja sér bílaleigubíl og þannig fer dreifingin fram í landinu. Allt Ísland, allt árið.