Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir að ljá máls á ferðaþjónustu í kjölfar Covid og sérstaklega fyrir efnistökin. Mér fannst þau um margt áhugaverð og hafa leitt hérna til mikilvægrar og áhugaverðrar umræðu um m.a. gjaldtöku af greininni. Hér hefur verið rakin saga, eins og hv. þm. Inga Sæland orðaði það, valkvíða um hvernig átti að koma á gjaldtöku og með hvaða hætti og ýmsar leiðir skoðaðar. Lendingin var orðin hækkun gistináttagjalds. Fyrir hafði verið lagt á lágt gjald, 300 kr., á hverja gistingu. Stefnan var að hækka það og láta sveitarfélögin fá hluta, en eins og við þekkjum var ein af þeim aðgerðum sem farið var í vegna Covid að fella það alfarið niður. Það átti að gilda út árið 2021 en í vinnu við fjárlög 2022 þá var það framlengt þannig að þessi niðurfelling gildir út þetta ár. Það er gott að heyra frá hæstv. ráðherra að fyrirhuguð sé vinna við endurskoðun á þessu fyrirkomulagi til framtíðar, enn einn snúningur á því. En í því samhengi velti ég fyrir mér og bið kannski ráðherra um að velta því líka fyrir sér eða svara því hvort sú vinna verði með einhverjum hætti sett í samhengi við vinnu við endurskoðun rekstrarumhverfis og skattstofna sveitarfélaga almennt sem ég tel vera mjög mikilvæga áskorun fyrir ríkisstjórn og þing.