Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.
Frú forseti. Ég er stolt af íslenskri ferðaþjónustu, og held að við ættum öll að vera það, sem sýndi sig vera nýsköpunargrein á erfiðum tíma í sögu Íslands og ekki síst fyrir hinar dreifðari byggðir, hefur skilað þjóðinni miklum tekjum. Hér eru enn þá mikil tækifæri en auðvitað líka hættur. Það var jákvætt að sjá hversu hratt íslensk ferðaþjónusta tók við sér eftir heimsfaraldur. Þar vorum við fyrr á ferðinni en aðrar þjóðir en ég vil líka benda á hversu viðkvæm staðan er. Hérna erum við að mig minnir með um 40% af öllum gjaldeyristekjum, Covid-aðgerðir í þágu ferðaþjónustunnar skiluðu sér vel, en þegar við lítum yfir sviðið á alþjóðavettvangi eru auðvitað blikur á lofti. Svo ég leyfi mér að tala hérna á ensku þá er krísan úti í Evrópu, „cost of living crisis“, orðin svo stór og svo mikil að þar verður að líta til þess að allar rannsóknir segja okkur að fólk sker fyrst niður í ferðalögum og upplifun þegar kreppir að. Það hefur vitaskuld áhrif á okkur, ekki síst ef höfum í huga t.d. hver fjöldi Breta er sem hingað kemur til lands, en mér hefur sýnst fjöldi bandarískra ferðamanna vega þar upp á móti, a.m.k. sem stendur. Þetta sýnir okkur vel hvað þetta tengist allt saman og að við erum alltaf öðrum háð.
Mér finnst gistináttagjaldið verið eðlilegur leikur og er ánægð með orð ferðamálaráðherrans en vildi nefna í lokin að staðan á Reykjanesbrautinni og ákveðið viðbragðsleysi þar finnst mér vera viss áfellisdómur yfir stjórnvöldum, að hafa ekki nýtt tímann betur (Forseti hringir.) í heimsfaraldrinum hvað þetta varðar, ég bendi á Finnland í því samhengi. Ég hvet ráðherra til að vera í nánu samstarfi við innviðaráðherra (Forseti hringir.) hvað þetta varðar til að auka fyrirsjáanleika fyrir ferðamenn og greinina alla.