Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.
Frú forseti. Eins og við þekkjum er íslensk náttúra einstök. Kennari minn einn í menntaskóla sagði að náttúran á Íslandi væri sú fallegasta í heimi, hugsanlega fyrir utan Noreg. Ég er nú reyndar ekki sammála þessari viðbót hans (Gripið fram í: Nei.) en í öllu falli er ljóst að ferðamenn sækja hingað fyrst og fremst til að upplifa náttúruna og skiljanlega. En við þurfum að bæta við þær stoðir með aukinni menningartengdri ferðaþjónustu og það hefur tekist vel til á margan hátt með það. Hér eru haldnar stórar tónlistarhátíðir, tónleikar, og margir sækja landið heim til að upplifa það. Kvikmyndagerð hefur kynnt menningu landsins fyrir umheiminum þótt í sumum tilvikum gefi það kannski til kynna að morð séu álíka tíð hér eins og þau voru í Oxford á meðan Inspector Morse starfaði þar. En í öllu falli er fólk móttækilegt fyrir því að upplifa íslenska menningu, hefur áhuga á henni og vaxandi áhuga. Þann áhuga eigum við að nýta og nýta m.a. sögurnar, hina fornu arfleifð Íslendinga. Áhugi á víkingum er t.d. með mesta móti nú til dags eins og birtist í hinum ýmsu sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Það getum við nýtt miklu meira og Íslendingasögurnar og svo fjölmargt annað til að breikka ferðaþjónustuna. Þó vil ég sérstaklega nefna mikilvægi þess að við hugum betur að hinu byggða umhverfi, sögu byggðanna, því að það koma ekki margir til lands til að skoða byggingar sem þeir gætu séð heima hjá sér eða hvar sem er, þeir vilja skoða það sem er sérstakt. Við Íslendingar eigum því miður allt of lítið af sérstæðum sögulegum byggingum. Við þurfum að verja það sem við eigum og stuðla að uppbyggingu og viðhaldi þess og stjórnvöld þurfa að hafa forystu um að veita slíka hvata.