Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum fyrir mjög svo áhugaverða umræðu og ýmsa vinkla á henni. Við getum tekið ýmislegt úr henni saman en ég held að við öll sem höfum tekið hér til máls í dag séum sammála um mikilvægi þessarar greinar, en jafnframt að það þurfi að tryggja vöxt og viðgang hennar með þeim hætti að við berum ekki skaða af. Það var ekki að ástæðulausu sem ég tók dæmið um fiskstofn áðan í framsögu minni. Við höfum og þekkjum líka reynsluna af því að hafa ekki gengið nægilega vel um auðlindina, eins og til að mynda síldarauðlindina á sínum tíma, og að mínu viti eru ferðamennirnir í sjálfu sér nýja silfrið.
Við þurfum því að gæta vel að því hvernig við gerum þetta. Ég er hins vegar, talandi um silfur, á því að hægt sé að ná frekari gjaldtöku af þessari grein og fagna því sem fram kemur í stjórnarsáttmálanum og þeirri vinnu sem hæstv. ráðherra lýsti. En það þarf auðvitað að gera það af mikilli skynsemi og úthugsun. Hv. þingmenn hafa hér nefnt ýmis pund í því samhengi. Ég tek undir það, sjálfur hef ég verið hrifnastur af því að það sé einhvers konar komu- eða brottfarargjald, altént gjaldstofn sem styður sannarlega við þá þörf á uppbyggingu innviða sem ég taldi upp í löngu máli í upphafi. Þetta er líka almannavarnakerfið og heilbrigðiskerfið. Þetta kemur mjög víða við og við gerum okkur öll grein fyrir því.
Að endingu vil ég bara taka undir góð orð hv. þingmanna sem lúta að því að sannarlega snúast gestakomurnar um meira en heimsóknir í íslenska náttúru, þó að þær hafi sannarlega mesta vægið, og ég held að víða sé ókannaður akur þegar kemur að menningarmálunum sem eru vaxandi atvinnugrein, sem betur fer — talandi um að fjölga eggjunum í körfunni.