153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

Ferðaþjónustan á Íslandi í kjölfar Covid-19.

[11:57]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni fyrir mjög góðar umræður og þinginu öllu fyrir áhugaverðar og skemmtilegar umræður. Í ljósi þess langaði mig að hverfa til ársins 1920 og vitna í leiðara Morgunblaðsins frá 19. ágúst — ég minni á það að árið 1920 voru Íslendingar aðeins 93.000, Framsóknarflokkurinn fjögurra ára og ekki mikið af ferðamönnum. Með leyfi forseta:

„Ekki þarf neinum blöðum um það að fletta, að frá landsins hálfu eru skilyrði svo góð, sem hugsast getur, til þess að hingað ferðist fjöldi fólks á hverju einasta sumri. Ísland hefir að mörgu leyti engu síðri skilyrði en Sviss til þess að draga að sér útlenda ferðamenn. Hér er einkennileg og margháttuð náttúrufegurð, sem flestir hafa heillast af er hingað hafa komið, og verið sæmilega veðurheppnir. Ísland hefir eignast vini, er hafa unnið því gagn út um [allan] heim […]. Það er ekki fyrir tilstilli þjóðarinnar, að útlendingar hafa vanið komur sínar hingað. Af Íslendinga hálfu hefir ekkert verið gert til þess, að draga hingað ferðamenn. [...] Íslendingar verða nú að fara að gera sér það ljóst, hvort þeir vilja að landið verði ferðamannaland eða ekki. Það kann að vera, að sumir komi með mótbárur gegn því, að hingað komi mikið af ferðamönnum, eða að nokkuð sé gert til þess, að laða að ferðafólk að landinu, og telji það hættulegt þjóðerninu. En þegar á allt er litið, verður ekki annað séð, en að gagnið sem orðið geti af ferðamannaheimsóknum hingað, sé svo mikið, að sjálfsagt sé að styðja að þeim.“

Það er gaman frá því að segja að í þessum 123 ára gamla leiðara á margt við enn í dag.

(Forseti hringir.) Örstutt langar mig að nefna, virðulegur forseti, að flugþróunarsjóður hefur verið að skila miklum árangri. Við sjáum tíðari flug með Condor og öðru slíku þannig að hann er loksins farinn að skila árangri. (Forseti hringir.) Við erum á fullu varðandi menningartengda ferðaþjónustu og erum að lyfta bókmenntaarfinum okkar. Lífskjarakrísan sýnir að það er ekki endilega víst að heimsóknum fækki hingað þegar fólk forgangsraðar öðruvísi (Forseti hringir.) og að lokum erum við að sjálfsögðu að vinna að innviðauppbyggingu.