9útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir andsvarið. Það er gaman að heyra úr reynslubanka hv. þingmanns, hvernig hann metur að staðan sé. Ég held að það sé verið að lesa stöðuna rétt. Í framhaldi af því sem hv. þingmaður sagði, um að kannski fengju einhverjir Sjálfstæðismenn að vera á móti einhverju námskeiði, verður kannski til málamynda einhverjum VG-liðum leyft að vera á móti frumvarpinu.
Í lok ræðu hv. þingmanns virðist eins og við séum jafnvel líka sammála, þ.e. um það að við þurfum stórlega að auka okkar þróunaraðstoð sem er verið að inna af hendi í þróunarlöndunum. Í dag er Ísland aðeins komið hálfa leið að því markmiði sem OECD hefur bent á. 0,35% af þjóðarframleiðslu fara til þróunarmála, það á að fara í 0,70%. Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar virðist þetta eiga að vera flatt út þetta kjörtímabil í 0,35%. Mig langaði að spyrja hv. þingmann sem formann Miðflokksins hvort Miðflokkurinn myndi standa með öðrum flokkum, hvort sem þeir eru í ríkisstjórn eða ekki, í því að búa til áætlun um það hvernig við eigum að komast í 0,7%, sem er alþjóðlega viðmiðið, og þar með hjálpa fólki þar sem það býr. Eins og hv. þingmaður benti á er það náttúrlega best ef við getum gert fólki kleift að lifa betur á þeim stað. — Ég tók eftir því að ég fékk aukamínútu.
(Forseti (JSkúl): Hv. þingmaður féll af mælendaskrá þannig að hann fékk tvær mínútur, já.)
Takk.