útlendingar.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er, hefur mér sýnst af öllu sem fram hefur farið hér og annars staðar, sennilega ekki mjög sammála mér um málaflokkinn efnislega. Hins vegar var margt í máli hans sem varðar formið og feril þessa máls sem ég get tekið heils hugar undir og hef velt fyrir mér sjálfur, t.d. þeirri staðreynd hversu fáir stjórnarliðar koma til að tala um málið og hvaða vísbendingar það gefur mögulega og í raun hvers konar skilaboð það sendir um hvað fólki finnst um þingið og hlutverk þess.
Hæstv. félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra var hér í óundirbúnum fyrirspurnum og þar var hægt að ná á hann til að spyrja um umræðuna hér og skoðanir hans. Þar talar hann um að frumvarpið sé afgreitt. Þingflokkur VG samþykki að taka málið til meðferðar þannig að í þeim skilaboðum felst væntanlega — já, það er allt í lagi að taka þetta til meðferðar en svo er annað með afstöðu okkar, hvernig við afgreiðum og tölum um málið. En svo kemur bara þögn. Það er svo skrýtið að vera í þessari óvissu, t.d. um hvernig eigi að afgreiða þetta í nefnd. Ég tek líka undir hvað það er mikið stefnuleysi til staðar. Það er ekki tekin forysta, heldur bara ákveðið að fara í einhverja átt. Þess í stað er þingmönnum boðið upp á að takast á við þessa stöðu, einhvern bútasaum, eins og hér birtist.