útlendingar.
Frsm. 4. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):
Frú forseti. Við í stjórnarandstöðunni, og stjórnarandstaðan almennt, höfum auðvitað mjög takmörkuð áhrif, ef við segjum hlutina bara hreint út. En á móti hefur þó yfirleitt komið að stjórnarandstaðan hefur getað vitað að það sem kæmi frá ríkisstjórn væri stutt af ríkisstjórninni, væri niðurstaða hennar. Þá getur stjórnarandstaðan andmælti því, fært rök gegn því sem ríkisstjórnin ætlar sér að innleiða því ríkisstjórnin leggur yfirleitt ekki fram mál nema ætla að klára þau á meðan hún heldur meira og minna öllum málum minni hlutans frá.
En nú er öldin önnur. Við erum með ríkisstjórn þar sem ráðherrar tala jafnvel hver í sína áttina, ekki hvað síst hæstv. dómsmálaráðherra og hæstv. félagsmálaráðherra. Og þetta er ekki í fyrsta skiptið. Það hefur gerst í öðrum málum líka með hætti sem maður er ekki vanur að sjá hjá samráðherrum í ríkisstjórn. Nú kemur þetta mál hér og eins og hv. þingmaður bendir á segist hæstv. félagsmálaráðherra þurfa að skoða og fylgjast með málinu. Hann er með öðrum orðum ekki að lýsa yfir stuðningi við málið en vill þó ekki segja þinginu hvað það er sem hann væntanlega gerir athugasemd við. Þetta setur okkur í dálítið erfiða stöðu. Þegar ráðherra í ríkisstjórn segist hugsanlega ekki vera hlynntur ríkisstjórnarmáli en er ekki tilbúinn að segja okkur hvað það er sem hann er ósáttur við, hvernig á þá að eiga sér stað einhver alvöruumræða um kosti og galla málsins? Og ég hefði satt best að segja viljað sjá hæstv. félagsmálaráðherra taka þátt í þessari umræðu. Áður var okkur sagt að hann væri í útlöndum og gæti þess vegna ekki verið með. En nú er hann greinilega mættur en samt ekki í umræðuna.