153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[12:37]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Okkur í stjórnarandstöðunni hefur orðið tíðrætt um það að við teljum að það séu hlutir í þessu frumvarpi sem ekki standist stjórnarskrá lýðveldisins og mannréttindasáttmála sem gerðir eru. Þá er mikilvægt að lesa 4. kafla greinargerðar sem fylgdi með frumvarpinu en hann hefst svo með leyfi forseta:

„Frumvarpið gefur ekki tilefni til að skoða sérstaklega samræmi við stjórnarskrá.“

Nú bárust yfir 20 athugasemdir eða umsagnir sem margar hverjar bentu á að þetta væri nú ekki rétt. Þá langar mig að rifja upp eftirfarandi: Í þingskapalögum í 37. gr., undir lok 1. mgr. stendur, með leyfi forseta:

„Stjórnarfrumvörpum skal fylgja mat á áhrifum [...]“ og einnig stendur: „Forseti getur sett leiðbeiningarreglur um frágang lagafrumvarpa.“

Mér fannst þetta athyglisvert þannig að ég fór og athugaði hvaða leiðbeiningar væru til. Ég fór þá á vef Stjórnarráðsins og fann þar Handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa. Í 5. kafla þeirrar handbókar stendur, með leyfi forseta:

„Í hvert sinn sem settar eru nýjar reglur eða gildandi reglur eru endurskoðaðar fer fram einhvers konar mat á áhrifum. Skoðað er hvaða afleiðingar reglur hafi, hverjir verði fyrir kostnaði af reglum og hverjir njóti góðs af. Oftast er slíkt mat óskráð og þess sér ekki stað nema að litlu leyti í tillögu að breytingum á gildandi reglum. Í samræmi við stefnumótun ríkisstjórnarinnar er ætlunin að þegar stjórnarfrumvörp eiga í hlut verði mat þetta í vaxandi mæli formbundið og samræmt.“

Í kafla 5.1. segir einnig, með leyfi forseta:

„Tilgangurinn með almennu mati á áhrifum er að leiða í ljós þær afleiðingar sem samþykkt frumvarps mun hafa í för með sér. Matið á að vera faglegt og hlutlægt.“

Svo ef við höldum aðeins lengra, vegna þess að farið er í gegnum ýmislegt varðandi það hvað hlutirnir kosta, en í kafla 5.1.2. segir einnig:

„Um mat á áhrifum á jafnrétti kynjanna má vísa til jafnréttisgátlista forsætisráðuneytisins sem birtur er á heimasíðu þess.“

Þetta fannst mér ansi merkilegt því að ég sá ekkert um mat á jafnrétti í þessu. Og að lokum, upp úr þessari handbók, langar mig að fara í kafla undir 5.1.4. þar sem fyrirsögnin er: Undirbúningur lagafrumvarpa, lykilspurningar um efnisleg atriði. Í 2. tölulið þar undir er talað um samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar. Þar er eftirfarandi lykilspurning:

„Hefur við samningu frumvarps verið gætt að samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins?“

Að lokum í þessari handbók, í 7. kafla sem heitir: Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar, segir, með leyfi forseta:

„Við samningu frumvarpa verður að gæta að því að lög séu í samræmi við stjórnarskrá. Sérstaklega þarf í þessu sambandi að huga að mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Að sama skapi hvílir sú þjóðréttarlega skylda á íslenskum stjórnvöldum að gæta að samræmi laga og alþjóðlegra skuldbindinga.“

Þetta er ekki eitthvað, frú forseti, sem við í Pírötum bjuggum til eða við í Pírötum erum að segja að þurfi að vera í lagafrumvarpi. Þetta hefur ríkisstjórnin sjálf sett sér sem vinnureglu sem á að fara eftir. Þegar greinilegt er að við samningu þessa frumvarps hafi þessu ekki verið fylgt, þá er það mjög sanngjörn beiðni okkar úr stjórnarandstöðunni að fá slíkt óháð mat á því (Forseti hringir.) fyrst ráðuneytið fór ekki í þetta mat og er ekki með það skriflegt hér í þessu frumvarpi.