153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[12:59]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þyrfti sennilega restina af deginum í andsvör til að leiðrétta margar þær misfærslur sem komu fram í ræðu hv. þingmanns. En mig langar að byrja á því að tala um Venesúela. Mig langar að benda hv. þingmanni á að ég hélt sérstaka ræðu hér í gær um af hverju Venesúelabúar eru að sækja um hæli. En mig langar að benda hv. þingmanni á að lögin eru þannig í dag, það er nákvæmlega kærunefnd útlendingamála sem fer eftir lögunum sem við erum með til að skilgreina og meta hvert mál fyrir sig og í úrskurði sem sú kærunefnd kvað upp segir, með leyfi forseta:

„Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gaf út leiðbeiningar vegna umsókna venesúelskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd árið 2019. Í leiðbeiningunum kemur fram að það sé mat stofnunarinnar að meiri hluti venesúelskra ríkisborgara hafi ríka þörf fyrir vernd vegna ástandsins í Venesúela. Atburðir undanfarinna ára hafi raskað allsherjarreglu í landinu og sé líf þeirra, öryggi og frelsi því í hættu. Í ljósi ástandsins hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hvatt aðildarríki til þess að senda venesúelska ríkisborgara ekki aftur til landsins.“

7,1 milljón manna hefur farið frá Venesúela, 7,1 milljón. 6 milljónir hafa farið til nágrannalanda í Suður-Ameríku. Það að líf fólks, öryggi og frelsi sé í hættu er nákvæmlega það sem stendur í 37. gr. laga um útlendinga, um skilgreininguna á því hvað er umsækjandi um alþjóðlega vernd og flóttamaður, nákvæmlega það sem stendur þar og hefur ekkert með eitthvert efnahagsástand að gera, ekkert. Þetta er fyrsta rangfærslan sem mig langar að leiðrétta.