153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[13:06]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allsh.- og menntmn. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Hann talaði um að lögin væru þannig í dag að kærunefnd útlendingamála væri að úrskurða þannig. Við erum með breytingartillögu við lögin. Þess vegna erum við með þessa breytingartillögu. Kærunefnd útlendingamála ber að fara að settum lögum í landinu. Þess vegna erum við með breytingartillögu við lögin.

Hv. þingmaður talaði um meiri hluta venesúelskra ríkisborgara. Það eru 15 milljónir. Og á hverju byggja þessar umsóknir sem eru að koma frá Venesúela? Þær byggja úrskurði kærunefndar. Það er úrskurður kærunefndar sem segir hverjir fá að koma inn í landið, ekki einhver stofnun úti í heimi, hvað hún heitir, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Það er úrskurður kærunefndar og rökin í úrskurði kærunefndar liggja fyrir. Það er búið að taka málsgreinina út, sérstaklega í nefndaráliti 2. minni hluta, ég er búinn að lesa upp úr henni tvisvar. Það er klárt mál að ef hv. þingmaður les úrskurðinn þá er sá úrskurður grundvallaður á efnahagsástandinu í ríkinu, hárri glæpatíðni. (Forseti hringir.) Ég bara skora á hv. þingmann að lesa þennan úrskurð. Þá getur hann séð þetta svart á hvítu. Hann getur lesið þetta líka í nefndarálitinu. (Forseti hringir.) Það er það sem skiptir máli og þessi breytingartillaga Flokks fólksins byggir á handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um nákvæmlega þetta atriði. (Gripið fram í.)