útlendingar.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir góða ræðu. Hún var afar upplýsandi og vék að mörgum hlutum, þar á meðal tölum eins og 4.500 og 45.000, en á bak við þessar tölur er samt fólk. Það er spurt, og hefur ítrekað verið spurt, í þessum ræðustól um hversu mörgum við getum tekið við. Þessari spurningu er að mörgu leyti ekki hægt að svara vegna þess að hún byggir á ansi mörgum þáttum.
Fyrir það fyrsta þá byggir hún á því hversu vel við tökum á móti fólki, hversu lengi við þurfum að geyma það í lokuðum úrræðum, hversu lengi við höldum því án þess að það hafi möguleika á að framfleyta sér með atvinnu. Það er raunverulega vandamálið sem við eigum að vera að leysa. Við eigum að leysa þau vandamál að fólk hafi tækifæri; fólk sem hingað leitar til okkar eftir vernd hafi tækifæri.
Það sorglega við þetta er að við erum að sjá fólk leita hingað sem er ekki að biðja um neitt annað en öryggi. Það er það sem fólkið sem hingað leitar þarf á að halda. Það er ekki að biðja um neitt annað í mörgum tilfellum. Við getum vel tekið á móti fólki og sérstaklega ef við reynum með skilvirkum hætti að aðstoða fólk við að komast inn í samfélagið okkar þá getum við gert miklu betur.