153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[13:09]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allsh.- og menntmn. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Að sjálfsögðu getum við gert miklu betur. Í dag er verið að koma með búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Vatnagörðum þar sem sprautufíklar búa. Við erum ekki að gera betur en það. Við erum ekkert að gera þetta sérstaklega vel. Við erum 360.000 manna samfélag, við getum ekki vegna stærðar okkar og fámennis verið að taka á móti 5.000 manns ár eftir ár. Við getum það ekki, svo einfalt er það, nema við ætlum að breyta íslensku samfélagi. Þá bara tökum við það upp. Og ef hv. þingmaður vill hafa opin landamæri þá er það að sjálfsögðu skoðun. Ég er ekki á þeirri skoðun. Það er ekkert ríki í Evrópu sem er á þeirri skoðun. Svíar sem tóku á móti 170.000 manns 2015 eru búnir að herða löggjöf sína stórkostlega. Nú eru nýir aðilar þar við völd m.a. vegna þessarar stefnu. Danir voru með eina frjálslyndustu löggjöf á sínum tíma í þessum málaflokki. Þeir eru með eina ströngustu löggjöfina núna, þeir eru búnir að gefast upp. Við erum að fara þá leið. Það mun taka svona fimm, tíu ár, þá verðum við komin þangað. Auðvitað ættum við að taka vel á móti fólki sem þarf á vernd að halda og að það fái réttláta málsmeðferð. Þetta snýst ekki um það. Það liggur fyrir í lögum. Reglurnar eru þannig að það á að tryggja réttaröryggi þeirra umsækjenda sem sækja um alþjóðlega vernd og þeir sem fá höfnun þurfa annaðhvort fara af landi með frjálsri för eða þá þvingaðri brottför. Það er bara þannig, það eru reglur. Það er alls staðar þannig. En við verðum að taka vel á móti þessu fólki. Það er fjöldinn sem við erum að fá sem er allt of mikill. Við ráðum ekki við fjöldann. Það er það sem er stóra vandamálið. Það er af því að við erum búin að uppdikta einhverjar sérreglur, ætlum að reyna að gera þetta eitthvað öðruvísi en aðrir; öðruvísi en Norðmenn, Danir og öðruvísi en Svíar núna — það er það sem er vandamálið. Ég segi: Við verðum að taka á þessum málaflokki til að standa við alþjóðlegar skuldbindingar okkar. Burt með sér reglurnar og komum í veg fyrir að kærunefnd útlendingamála (Forseti hringir.) sé að taka ákvarðanir sem standast ekki lög og ef hún tekur ákvörðun (Forseti hringir.)sem opnar allar flóðgáttir frá einu ríki en ekki öðru þá á Alþingi Íslendinga að grípa inn í.