útlendingar.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir svar við andsvari en ég vil líka biðja hv. þingmann um að leggja mér ekki orð í munn. Ég hef aldrei talað um opin landamæri. Það er ekki það sem ég hef sagt. Ég vil líka benda á að þetta er fólk í neyð. Eins og ég vék að í ræðu minni hér fyrr í þessari viku er ein leið til að koma í veg fyrir utanvegaakstur að athuga hvar fólk keyrir utan vegar og merkja það bara sem veg. Það sem við erum að tala um er að fólk sem hingað hefur leitað í raunverulegri þörf á aðstoð, sem á rétt á henni, er meinað um það hér eftir með þessum breytingum, með því að fella út þá möguleika sem kærunefndin hefur bent á.