153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[13:17]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allsh.- og menntmn. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Málið hér undir er að markmið þessa frumvarps er að reyna að auka skilvirkni í málaflokknum, þ.e. að auka getu kerfisins til að afgreiða umsóknir um alþjóðlega vernd á sem skilvirkastan hátt. Ég tel að þetta frumvarp nái ekki markmiðum sínum. Það gerir það ekki. Það eru m.a. enn þá inni sérreglur um það og meira að segja verið að fara þá leið að skerða réttindi eftir 30 daga, sem ég tel að muni brjóta á fólki þannig að það lendi í örbirgð. Þess vegna er ég með breytingartillögu sem lýtur að því að íslenska ríkinu ber skylda til að sjá til þess að fólk sem hefur ekki réttindi eftir 30 daga lendi ekki í örbirgð. Það er ein af breytingartillögunum.

Varðandi breytingartillöguna um efnahagsástand, að það sé ekki lagt til grundvallar, leggjum við til grundvallar úrskurð kærunefndar um kærurnar vegna Venesúela. Það þýðir ekki að Ísland hætti að taka á móti öllum frá Venesúela. Að sjálfsögðu ekki. Það myndi þýða að þeir sem kæmu hingað gætu ekki vísað til efnahagsástands í Venesúela og að þar sé há glæpatíðni, óhreint vatn o.s.frv. Það myndi bara þýða fyrir umsóknir frá Venesúela að þar myndi vera horft einstaklingsbundið á þann einstakling sem kæmi frá Venesúela, hvort hann búi við ótta.

Breytingartillaga Flokks fólksins byggir á Handbók um réttarstöðu flóttamanna; málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna sem gefin var út af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna þar sem fjallað er um skilin milli efnahagslegra innflytjenda og flóttamanna. Þess vegna erum við með þessa grein, til að það séu ekki efnahagslegir flóttamenn að koma hingað og sækja um hæli. Það er grundvallaratriði en það myndi ekki þýða að það kæmi enginn sem væri ofsóttur í Venesúela, pólítískt ofsóttur eða út af kynferði sínu eða þjóðfélagsstöðu eða annað slíkt, af því að hann gæti ekki komið hingað. Það er skýrt í lögunum að ekki sé hægt að grundvalla úrskurðina á efnahagsástandi. Út á það gengur þetta. Og það á sér sterka stoð í Handbók um réttarstöðu flóttamanna; málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum. (Forseti hringir.) Það er það sem verið er að gera með þessari breytingartillögu.