153. löggjafarþing — 56. fundur, 26. jan. 2023.
útlendingar.
382. mál
Frú forseti. Ég hef þurft að koma hér upp í ræðustól ítrekað, því miður, til þess að spyrja forseta hvort von sé á því að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra muni koma hér og taka þátt í efnislegum umræðum eins og við höfum ítrekað óskað eftir, fyrst 9. desember við 1. umr. þessa máls og ítrekað eftir það í bréfum til forseta, í ræðustól og þess háttar. Mig langar því að spyrja frú forseta hvort forseti hafi einhverjar upplýsingar um slíkt.