útlendingar.
Virðulegi forseti. Mig langaði að lýsa yfir vonbrigðum með það að við erum hérna að ræða afar mikilvægt mál sem mörgum spurningum er ósvarað um, þar sem við erum með ótal umsagnir frá mörgum aðilum. Kannski er lýsandi fyrir samráðið sem hefur átt sér stað í þessu máli að hér er ekki að finna neinn ráðherra né neinn þingmann frá nokkrum stjórnarflokkanna í salnum til umræðu um málið.
Ég bara lýsi furðu yfir því að hv. þingmenn sjái sér ekki fært að koma og taka þátt í umræðum um þessi mál. Ég hef lagt fram margar spurningar um þetta mál og ég hef ekki orðið var við að þeim hafi verið svarað og ég kalla eftir því að fá svör við þessum vangaveltum.