útlendingar.
Frú forseti. Í síðustu ræðu minni fjallaði ég aðeins um það hvernig eigi að vinna lagafrumvörp samkvæmt þeim leiðbeiningum sem ríkisstjórnin hefur gefið út og þeirri handbók sem þarf að fylgja. Í þessari ræðu minni langar mig að fara í næsta skref þess ferlis, þ.e. eftir að mál koma inn í þessa margumtöluðu þinglegu meðferð. Við Íslendingar erum stolt af því að vera lýðræðisþjóð. Á fjögurra ára fresti kjósum við fulltrúa til að stjórna landinu og setja okkur lög. Margir spyrja sig hins vegar hvort fólk sem býr við fulltrúalýðræði geti í raun og veru ráðið einhverju um þær ákvarðanir sem teknar eru í umboði þess. Er í raun eitthvað hlustað á skoðanir og athugasemdir fólks og félagasamtaka nema kannski í aðdraganda kosninga og þá bara til að fá viðkomandi til að kjósa sig miðað við loforð sem strax eftir kosningar eru svikin?
Á undanförnum áratugum hefur hugmyndin um íbúalýðræði fengið aukinn stuðning eins og sjá má t.d. í tillögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá þar sem bæði er hægt að fara fram á þjóðaratkvæðagreiðslu um mál og sömuleiðis að ákveðið hlutfall kjósenda geti lagt fram frumvarp til samþykktar á Alþingi. En það er kannski framtíðarmúsík.
Í þingsköpum Alþingis segir, með leyfi forseta:
„Nefnd getur við umfjöllun máls óskað skriflegra umsagna um það frá aðilum utan þings. Á sama hátt geta þeir er mál varðar komið skriflegum athugasemdum sínum að eigin frumkvæði á framfæri við nefnd. Sömuleiðis getur nefnd samþykkt að taka við gestum og hlýða á mál þeirra.“
Með þessu ákvæði í þingsköpum er komið til móts við þá hugmynd að mikilvægt sé að fá álit einstaklinga, stofnana, félagasamtaka og fyrirtækja á þeim lögum sem verið er að setja eða breyta hverju sinni. Þó svo að um valkvætt ákvæði sé að ræða er í flestum tilfellum sá háttur hafður á að frumvörp og þingsályktunartillögur eru sendar af nefndinni til umsagnaraðila. Það var gert t.d. í þessu máli. Úr þeim hópi sem skilar inn umsögnum eru valdir ákveðnir aðilar og nefndarmönnum þar sem gefst kostur á að spyrja nánar út í umsagnir þeirra og önnur mál.
Allt hljómar þetta gott og vel og utan frá lítur þetta út eins og virkilega sé hlustað á álit þeirra aðila sem hafa aðkomu að viðkomandi máli. Raunveruleikinn, eins og við sjáum hér í dag, er hins vegar sá að hlustað er á fæstar þær athugasemdir sem berast nema þær bendi á þeim mun alvarlegri ágalla á málinu. Við erum búin að vera að lesa hér um ágalla á stjórnarskránni en það virðist ekki vera nógu merkilegt. Alla vega er það þannig að orðið er við nær öllum athugasemdum sem koma frá ráðuneytinu þar sem frumvarpið var samið — oft uppgötva þau ágalla eða hluti sem betur mættu fara eftir að frumvarpinu er skilað til þingsins — en engu sem kemur frá öðrum. Sem nýr þingmaður sit ég oft hissa á nefndarfundum þar sem lögmætar og góðar ábendingar koma fram hjá umsagnaraðilum en fulltrúar stjórnarmeirihluta velja að hunsa þær ábendingar, greinilega af ótta við að styggja viðkomandi ráðherra. Í besta falli leiða þessar athugasemdir til þess að búinn er til texti í nefndaráliti þar sem áhyggjur eru nefndar en hnýtt við setningu um að ekki sé talin þörf á að taka á þeirri athugasemd.
Ég sé að ég er að renna út á tíma. Ég er hræddur um að ég þurfi að klára þessa ræðu þegar ég kemst aftur á mælendaskrá. Mig langaði að nefna að í þessu ákveðna frumvarpi komu 20 umsagnir frá bara mjög viðurkenndum umsagnaraðilum og félagasamtökum sem þekkja þessi mál mjög vel. Það var ekki tekið tillit til einnar einustu athugasemdar sem kom fram í skriflegum umsögnum og ekki eins einasta atriðis sem kom fram á fundum nefndarinnar — ekkert. Mig langar að segja í næstu ræðu, frú forseti, ef þú getur bætt á mælendaskrá, hvað þetta þýðir fyrir lýðræðið.