153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[13:49]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Ég var að ræða áðan um umsagnir. Mig langar að lesa fyrst upp úr nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar um þetta mál. Þar kemur fram að nefndin hafi fjallað um málið og fengið á sinn fund ansi marga og ég ætla ekki að nefna þau öll, þetta eru alla vega 10, 12 línur. Síðan stendur, með leyfi forseta:

„Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Alþýðusambandi Íslands, Barnaheillum, embætti landlæknis, Hafnarfjarðarbæ, Íslandsdeild Amnesty International, Kvenréttindafélagi Íslands, Landssamtökunum Þroskahjálp, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, Persónuvernd, Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur og Toshiki Toma, prestum innflytjenda og flóttafólks, Rauða krossinum á Íslandi, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Solaris – hjálparsamtökum fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, skrifstofu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir Norður-Evrópu og Læknafélagi Íslands. Þá sendu UNICEF á Íslandi, Barnaheill, Landssamtökin Þroskahjálp og Samfés, landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi, sameiginlega umsögn. Nefndinni bárust einnig tvö minnisblöð frá dómsmálaráðuneyti og minnisblað frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti. Þá barst erindi frá Rauða krossinum á Íslandi varðandi umsækjendur um alþjóðlega vernd sem ekki er hægt að flytja úr landi.“

Eins og þessi langi listi bendir á þá voru umsagnir margar og í nefndarálitinu, í umfjöllun nefndarinnar, er fjallað um samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar en margar athugasemdir komu um þetta og segir þar, með leyfi forseta:

„Í umsögnum um málið hefur verið vísað til nokkurra ákvæða stjórnarskrárinnar og alþjóðasamninga vegna ólíkra greina frumvarpsins, en Ísland á aðild að ýmsum mannréttindasamningum sem gerðir hafa verið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins sem geta haft áhrif á réttarstöðu útlendinga hér á landi.“

Síðan er farið í gegnum allar þær athugasemdir og svo segir í lokasetningu þessarar greinar, með leyfi forseta:

„Vísast nánar til þeirrar umfjöllunar um mat meiri hlutans á því hvernig ákvæðin samræmast stjórnarskránni.“

Þá langar mig bara að fara aftur — ég er reyndar búinn að gera þetta áður en ekki kannski beint í tengslum við akkúrat þetta. Í kaflanum í frumvarpinu sem nefndarálitið vísar til stendur, með leyfi forseta.

„… frumvarpið gefi ekki tilefni til að skoða sérstaklega samræmi við stjórnarskrána.“

Með öðrum orðum: Það er fullt af athugasemdum frá umsagnaraðilum, það er bent á að þetta standist jafnvel ekki stjórnarskrá og svar nefndarmeirihlutans er; „sjá greinargerð með lagafrumvarpinu“ en þar stendur að við þurftum ekki að gera neitt mat.

Frú forseti. Árið 1969 skrifaði Sherry nokkur Arnstein merka grein um það hvernig efla mætti þátttöku almennings í ákvarðanatöku. Hún flokkaði stig þátttökunnar niður í átta stigvaxandi þrep sem á endanum leiddu til beins íbúalýðræðis í formi íbúavalds. Sé litið til skilgreiningar Arnsteins má segja að samráð á Alþingi þegar kemur að þessu máli falli í besta lagi undir það sem hún kallaði málamyndaaðgerðir en undir það féllu aðgerðir þar sem valdhafar villa íbúum sýn með því að gefa í skyn að það sé hlustað á þá, en í raun sé allt slíkt einungis til málamynda og nær engar athugasemdir nái að hafa áhrif á ákvörðunartökuna.

Já, frú forseti, það væri óskandi að fleiri alþingismenn legðu við hlustir þegar athugasemdir og umsagnir berast og sýndu það þor að gera breytingar til hins betra á þeim frumvörpum og þingsályktunartillögum sem berast inn í þingið frá framkvæmdarvaldinu. Óttinn við að fara gegn ráðleggingum embættismanna í ráðuneytum, og styggja þar með ráðherra og skapa óróa í nú þegar brothættu ríkisstjórnarsamstarfi, virðist vera of mikill til þess að þingmenn þori að fylgja sannfæringu sinni.

Frú forseti. Við þurfum að hlusta og við þurfum að hafa alvörulýðræði hér á landi. (Forseti hringir.) Ég óska eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá.