153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:00]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég kem aftur hingað upp í ræðustól undir liðnum fundarstjórn til að athuga hvort virðulegur forseti hafi heyrt eitthvað í hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, um þá ítrekuðu, marg-, marg-, margítrekuðu, beiðni okkar um að hann komi hingað til að taka þátt í efnislegri umfjöllun um þetta mál sem, eins og ráðherrann sjálfur hefur bent á, snertir hann og hans ráðuneyti og embættismenn þaðan, snertir hans verksvið samkvæmt forsetaúrskurði. Mig langar að biðja enn og aftur, frú forseti, um aðstoð við að koma þessu á framfæri.