153. löggjafarþing — 56. fundur, 26. jan. 2023.
útlendingar.
382. mál
Virðulegi forseti. Mig langar að taka undir orð hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar um að hæstv. ráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, komi hingað og taki þátt í umræðunni. Bæði var hann hér í þingsal áðan og samkvæmt töflu sé ég ekki betur en að hann sé í húsi og tel að hann hljóti að vilja koma og taka þátt í þessari umræðu þar sem hann óskaði sérstaklega eftir aðkomu síns ráðuneytis að málinu. Ég lýsi furðu á því að hér sé ekki einhver frá stjórnarliðum að ræða málið. Það tel ég bara óskiljanlegt.