153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:02]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Það er gott að það er búið að koma skilaboðunum áleiðis en það væri voðalega gott að fá svar frá hæstv. ráðherra um hvort hann ætli sér að taka þátt í umræðunni eða ekki. Þá gætum við bara grafið þetta í raun og veru. Þá vitum við hvort hann ætlar að koma eða ekki og getum hætt að þrábiðja hann um að taka þátt í umræðunni. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra var hérna í morgun í óundirbúnum fyrirspurnum og þar svaraði hann engum spurningum sem var beint að honum. Hann fékk tvær spurningar. Í annarri þeirra var verið að bjóða honum að tjá sig um frumvarpið, þ.e. hver afstaða ráðherra væri til útlendingafrumvarpsins. Hin spurningin sneri að því að tjá þinginu hvaða breytingar þingflokkur Vinstri grænna hyggist gera á málinu í nefndarvinnunni milli 2. og 3. umr. Hvorugu af þessu var svarað og því er tilvalið fyrir hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra að koma fyrir þingið og svara þessum spurningum í þessari umræðu sem verður hér áfram í dag.