útlendingar.
Virðulegi forseti. Mig langar að víkja aðeins að gagnsæi sem er ein af höfuðáherslum okkar Pírata. Það er eitt af því sem við höfum gagnrýnt við þetta frumvarp. Því hefur ekki verið svarað hvernig hægt er að tryggja gagnsæi þegar ótal afar matskennd atriði er að finna í frumvarpinu. Hvenær er einstaklingur að leita að vernd? Hvenær er hann samstarfsfús? Hvenær er heilbrigðisþjónustan nauðsynleg? Þessu hefur ekki verið svarað, ekki frekar en hvernig þessari skilvirkni sem á að koma með þessu frumvarpi sé náð. Í raun hefur kannski afskaplega fáu verið svarað. Það er miður og aftur, þá er ekkert í þessu frumvarpi sem bendir til þess að málsmeðferðartími hjá Útlendingastofnun styttist — hann lengist. Það er nánast eins og það sé verið að setja í lög að það eigi að vera gott veður. Þannig bara virkar það ekki. Þetta frumvarp kemur ekki í veg fyrir eða fækkar þeim sem hingað leita. Það getur það ekki, það hefur enga möguleika til þess.
Við erum jafnframt ekki búin að taka á þeim ábendingum sem hafa komið um mannréttindakafla stjórnarskrárinnar. Við erum heldur ekki búin að ávarpa áhyggjur margra umsagnaraðila vegna þeirrar alvarlegu stöðu að skilja umsækjendur um alþjóðlega vernd ítrekað eftir í mikilli óvissu í langan tíma, oft á tíðum börn sem er síðan vísað harkalega úr landi. Og þar erum við aftur komin að þessu samráði, sem átti sér ekki stað, sem hefur skort á og ég kalla eftir raunverulegu samráði. Ég kalla eftir raunverulegu samráði þar sem hlustað er á ábendingar, þar sem við gefum umsagnaraðilum raunverulega möguleika til að hafa áhrif á ferlið. Það blasir við þegar við skoðum umsagnir og þegar við skoðum frumvarpið að umsagnaraðilar höfðu enga möguleika á að hafa áhrif á þetta ferli, þannig að það er ekki hægt að skreyta sig núna með einhverju samráði. Það var ekkert samráð, þetta var bara áheyrn og það er bara tímasóun að kalla eftir umsögnum. Það er tímasóun að kalla á fólk til að koma og mæta og gera grein fyrir umsögnum og gera grein fyrir áhyggjum, koma með tillögur og hlusta síðan ekki á það.
Við verðum að gera betur og við eigum að gera betur og ég kalla eftir því að við bætum úr þessu samráðsleysi og aftur kalla ég eftir því að það sé ekki bara bætt úr samráði við umsagnaraðila heldur verði líka bætt úr samráði við okkur í þinginu þannig að því sé ekki líka sleppt að gefa okkur færi á að hafa áhrif á málið með því að halda frá okkur þeim breytingum sem til stendur að gera á frumvarpinu, sem við ættum með réttu að fá til umræðu. Mér þykir algjört lágmark að við fáum tækifæri til þess og ég skil ekki enn þá af hverju þeim óskum hefur ekki verið sinnt að við fáum að ræða þau mál hér.