153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:36]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegi forseti. Við meðferð frumvarpsins komu fram ótal umsagnir og það virðist ekki hafa verið tekið mikið tillit til þeirra og fyrst hér fást hv. þingmenn stjórnarinnar ekki til að koma og ræða hvorki umsagnir né aðra þætti frumvarpsins ætla ég að lesa hérna hluta af því sem fram kemur í þessum umsögnum. Hjá Barnaheillum kemur fram að ítrekað hafi verið kallað eftir samráði en því kalli hafi ekki verið svarað. Jafnframt sé ótækt að tafir sem rekja megi til aðstandenda barns komi niður á rétti barns til efnismeðferðar. Í umsögn landlæknis segir að óásættanlegt sé að svipta fólk heilbrigðisþjónustu að 30 dögum liðnum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar auk þess sem vart þurfi að fjölyrða um alvarlegar afleiðingar sem stöðvun heilbrigðisþjónustu, hvort heldur er vegna langvinnra sjúkdóma eða bráðra, geti haft í för með sér ef ekki er brugðist við því sem upp kemur. Auk þess séu grundvallarmannréttindi að njóta heilbrigðisþjónustu og ítrekað hafi komið fram að ekki hafi verið gaumgæft að frumvarpið stæðist mannréttindakafla stjórnarskrárinnar, „en í alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi nr. 10/1979 segir m.a. í 12. gr. um „… rétt sérhvers manns til þess að njóta líkamlegrar og andlegrar heilsu að hæsta marki sem unnt er“. Fyrir utan að það er ómannúðlegt að neita einstaklingi um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu getur það boðið heim hættu fyrir aðra ef t.d. einstaklingur er haldinn smitsjúkdómi eða geðröskun sem hugsanlega eru ekki metnir alvarlegir við fyrstu sýn.“

Hafnarfjarðarbær bendir á að:

„Frestun réttaráhrifa hefur gert það að verkum að Útlendingastofnun getur ekki tekið til skoðunar að endurupptaka mál þó svo talsmenn og/eða við bendum á virkilega slæmar kringumstæður hjá fjölskyldum vegna barnaverndarmála eða annarra kringumstæðna. Þannig sjáum við mál festast í kerfinu og engin sjáanlegur endir er á málsmeðferð. Teljum við því þurfa að skoða vel mál sem komin eru út fyrir málsmeðferð á stjórnsýslustigi enda getur ekki sú biðstaða sem fjölskyldur eru settar í, sér í lagi börn, staðist barnasáttmálann og önnur lög sem sett eru í þágu barna.“

Íslandsdeild Amnesty International skrifaði ítarlega og langa umsögn og miðað við tímann sem ég á eftir, virðulegi forseti, mun mér ekki nægja sá tími til að fara út í nema bara hluta af þeim umkvörtunum. Þá er nóg eftir af öðrum umsögnum sem þarf að gera grein fyrir þannig að ég áskil mér rétt til þess að koma hérna seinna og gríp niður í umsögn Kvenréttindafélags Íslands. Ekki hefur enn verið framkvæmt nægjanlegt jafnréttismat líkt og skylt er samkvæmt jafnréttislögum, nr. 150/2020. Frumvarpið hunsar þau ólíku áhrif sem slíkar lagabreytingar hafa á stöðu kynjanna. Í handbók Jafnréttisstofu segir að skoða þurfi hvort lögin muni koma til með að hafa áhrif á líf fólks og hvort munur sé á stöðu karla og kvenna í málaflokknum. Ekki er tekið tillit til sérstakrar stöðu kvenna eða annarra jaðarhópa, t.d. þolenda mansals eða kynfæralimlestinga. Ekki hefur verið haft sérstakt samráð við fagaðila við vinnslu þessa frumvarps eins og bent var á í sameiginlegri ákvörðun 15 félagasamtaka á Íslandi þann 19. maí 2022. Ég mun koma hingað aftur og halda áfram lestrinum. Þú mátt setja mig á mælendaskrá.