153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:41]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég kem enn og aftur upp í ræðustól undir liðnum um fundarstjórn forseta til að kanna hvort eitthvað sé að frétta af hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, en við höfum ítrekað óskað eftir því að hann komi hingað þar sem þetta mál snertir hans ráðuneyti og hans embættismenn tróðu sér inn í málið á því stigi sem venjulega er kallað „í meðförum þingsins“ og við höfum óskað eftir því að hann komi hingað og ræði málið efnislega. Hann virðist vera týndur, alla vega höfum við ekki séð hann og reyndar virðist allur þingflokkur Vinstri grænna vera horfinn — spurning hvort hann hafi bara þurrkast út í skoðanakönnun eða eitthvað og hún virkað hingað inn í þingsal. (Forseti hringir.) En mig langar að biðja frú forseta að kanna þetta með þingflokk Vinstri grænna og ráðherra þeirra, hvort þeir séu enn ekki viðlátnir.