útlendingar.
Frú forseti. Ég kem hingað til að taka undir ósk hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar. Ég veit að það eru margir þingmenn meiri hlutans í húsi, ég skil það að einhverju marki að þau vilji ekki taka þátt í þessari umræðu. Það sem ég hef áhyggjur af er að það séu margir einstaklingar að fara að hleypa þessu máli í gegn án þess að skoða það, af því að það er búið að semja um eitthvað annað. Ég átta mig ekki á því vegna þess að það hefur í rauninni ekki komið fram.
Mig langar hins vegar til að eiga þetta samtal við ykkur. Ég trúi því að ef fólk rýnir í þessi lög, áttar sig á því hvað er verið að gera hérna, þá sé þetta ekki raunverulega eitthvað sem við viljum gera. Ég myndi vilja eiga þetta samtal. Ég myndi vilja skilja hvað ykkur gengur til. Ég myndi vilja vita það vegna þess að ég trúi því ekki að það sé það sem raunverulega gerist með þessu frumvarpi.