153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:44]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Nú er ræðutíminn orðinn svo stuttur hjá okkur að ég held alltaf í hvert skipti sem ég kem hingað upp áfram með það sem frá var horfið síðast. Líkt og ég hef nefnt hérna nokkrum sinnum, og gerði bara núna rétt áðan, þá hef ég áhyggjur af því að fólk sem er að fara að samþykkja þetta mál í gegnum þetta þing sem lög í þessu landi viti ekki hvað það er að samþykkja, viti ekki um hvað það snýst, viti ekki hvað það raunverulega gerir, taki gagnrýnislaust fullyrðingum þeirra sem leggja þetta frumvarp fram, sem er dómsmálaráðherra, um tilgang og markmið þessara laga og áhrif þeirra. Vegna þessa, og þar sem það er bara þannig að það er meiri hlutinn sem ræður hér á þessu þingi og þau munu ná þessu máli í gegn ef þau ætla sér að ná þessu máli í gegn, þá, eins og ég hef lýst yfir nokkrum sinnum, get ég ekki samvisku minnar vegna leyft því að gerast öðruvísi en að ég sé búin að gera allt sem ég get, allt sem í mínu valdi stendur til að útskýra hvað er hér í gangi. Það er ekki bara af prinsippástæðum sem ég er mótfallin þessu frumvarpi heldur vegna þess að þetta er gríðarlega vont mál. Það er mjög slæmt, það verður mjög slæmt ef þetta frumvarp verður að lögum. Það mun hafa slæmar afleiðingar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, fyrir flóttafólk, fyrir stjórnsýsluna og fyrir okkar samfélag í heild.

Þar sem frá var horfið síðast var ég að fara yfir ákvæði sem lagt er til með 1. gr. frumvarpsins og var ég í a-lið 1. gr. sem snýst um skilgreiningu á hugtakinu endurtekin umsókn. Líkt og ég nefndi hérna í gær þá er í sjálfu sér ekkert að því að í lögum sé ákvæði um endurtekna umsókn, hvernig skuli farið með einstakling sem leggur fram umsókn að nýju eftir að mál hans hefur verið klárað í kerfinu. En það sem ég hef mestar áhyggjur af varðandi þetta ákvæði er að það snýst ekki bara um endurteknar umsóknir. Inn í þetta er verið að möndla því sem kallað er beiðni um endurupptöku, þegar fólk kemur með ný gögn í sama máli, sömu umsókn, eða forsendur breytast í því máli. Samkvæmt almennum stjórnsýslulögum sem gilda um réttindi borgaranna í samskiptum við stjórnvöld eiga einstaklingar rétt á því að fá mál sitt tekið upp að nýju ef ákvörðunin sem var tekin var byggð á röngum forsendum, röngum gögnum eða röngum upplýsingum eða öðru, eða eitthvað hefur breyst verulega. Ég las orðrétt upp úr lagaákvæðinu í ræðu minni í gær þannig að ég ætla ekki að endurtaka það, fólk getur svo sem flett því upp. Með þessari skilgreiningu á endurtekinni umsókn í a-lið 1. gr. frumvarpsins spilar 7. gr. frumvarpsins þar sem í lokamálslið er aftengd þessi grein stjórnsýslulaga sem kveður á um rétt fólks til að fá mál sitt endurskoðað ef tilefni er til.

Þetta var svona smá upprifjun á minni gagnrýni, mínum helstu áhyggjum af þessu ákvæði. Ég hef miklar áhyggjur af þessu ákvæði og þetta er reyndar sennilega það ákvæði sem ég held að verði einna skaðlegast í þessum lögum, þar sem af reynslu minni sem lögmaður, sem vinnur í þágu fólks á flótta, þá er það mjög oft við endurskoðun máls sem, hvað eigum við að segja, réttur næst fram. Ég held því miður að það sé ástæðan fyrir þessari tillögu. Ég held því miður að það sé viljandi verið að setja stein í götu flóttafólks til að ná fram réttindum sínum. Það er ekki verið að gera þeim erfiðara að fá að dvelja á Íslandi, ég er ekki að tala um það, það er verið að gera þeim erfiðara að ná fram rétti sínum, mannréttindum. Af því hef ég áhyggjur.

Það sem vakti hins vegar athygli mína var það að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sem skilaði umsögn bara örfáum dögum áður en meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar skilaði frá sér nefndaráliti og afgreiddi málið úr nefndinni, gerði athugasemd við þetta ákvæði um endurteknar umsóknir, sem lýtur ekki að því sem ég er að segja heldur að heimildinni í lögunum til þess að yfirhöfuð skoða umsókn sem er endurtekin. Þá er þröskuldurinn svo hár að Flóttamannastofnun segir að þetta sé ekki neitt réttaröryggi.

Í ofanálag kemur Flóttamannastofnun með athugasemd við ákvæði sem ég næ ekki að fara yfir núna af því að ræðutíminn er svo stuttur. En ég mun halda áfram með þetta í minni næstu ræðu. Ég óska eftir því að forseti setji mig aftur á mælendaskrá. Ég endurtek, sama hvað hver gæti haldið: Ég er ekki í málþófi, ég er að reyna að útskýra þetta fyrir ykkur.