153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:55]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mér hefur fundist áhugavert í gegnum tíðina að hlusta á hann tala um þennan málaflokk, ekki síst með tilliti til hans fyrri starfa, reynslu eða innsýnar í það hverjar aðstæður fólks á flótta geta verið. Ég hjó eftir því sem hann var að nefna um breytur hvað varðar mismunun í þessu sambandi núna og var að velta því fyrir mér, það hefur aðeins verið talað um það í þessari umræðu, samanburð við Norðurlönd, samanburð við Evrópu, hvaða skref og hvaða takt íslensk stjórnvöld vilja stíga í þessum efnum. Finnst þingmanninum það vera stóra atriðið að hér verði séríslensk löggjöf? Ætti það að vera sjálfstætt markmið að fylgja öðrum þjóðum eftir eða hvernig skildi hann þessa orðræðu meiri hlutans hvað þann þátt varðar? Af því að ég heyrði aldrei hjá stjórnarþingmönnum sem töluðu með þessum hætti hvort það væru einhver tiltekin atriði í löggjöf annarra Norðurlanda t.d. sem ætti að fylgja eða hvort það væri bara þannig að það ætti að fylgja Norðurlöndum sérstaklega að málum nú eða Evrópu, mér fannst það nú reyndar mjög áhugavert frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem eru yfirleitt óskaplega feimnir við Evrópu. Hvaða orðræðu vorum við að hlusta á þar?