útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Hv. þingmaður varpar einmitt upp mjög góðri spurningu. Það er endalaust talað um séríslensk ákvæði en þegar við spyrjum hv. þingmenn stjórnarflokkanna hver þessi séríslensku ákvæði séu þá getur ekkert þeirra bent okkur á þau. Jú, ákvæði útlendingalaga hér eru að sjálfsögðu ekki nákvæmlega eins og einhvers staðar í öðrum löndum, hvort sem það er á Norðurlöndum eða í Evrópu. Það er meira að segja þannig í Evrópu, í Evrópusambandinu, sem ég veit að hv. þingmaður er mjög fylgjandi, að þar er ekki sameiginleg útlendingalöggjöf. Löndin innan Evrópusambandsins taka mismunandi á hlutunum rétt eins og öll Norðurlöndin taka mismunandi á hlutunum. Það er rosalega mikilvægt að hafa það í huga að það eru breytur sem skipta máli í þessu öllu saman. Ef við horfum á Úkraínubúana sem eru að koma á flótta frá Úkraínu — flest þeirra eru að sjálfsögðu næst Úkraínu, eru í Póllandi, og um 2.500 manns hafa komið hingað. Ég held að það séu miklu meira landfræðilegir þættir sem ráði séríslenskum hagsmunum. Ég held að það séu líka atriði eins og það að við erum mjög framarlega þegar kemur að jafnrétti. Við erum mjög framarlega þegar kemur að réttindum hinsegin og kynsegin fólks. Að sjálfsögðu leitar jafnvel fólk sem er á flótta sem er hinsegin og kynsegin til Íslands út af því. Það er kannski segull. En það er þá segull sem ég er mjög stoltur af að við höfum.