útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég tók til máls í þessari umræðu í gær og var þá m.a. að vísa í reynslu mína af því að ég sat í allsherjarnefnd, að mig minnir fyrir tveimur árum síðan, og þetta frumvarp var þar þá í aðeins annarri útgáfu til meðferðar. Ég var að tala um tímasóunina sem mér finnst ríkisstjórnin stunda við matreiðslu á þessu máli en þar var ég að vitna til þess að stjórnarliðar væru stundum að tala um að það þyrfti að horfa á stóru myndina án þess að við fengjum önnur frumvörp sem eiga að vera systurfrumvörp þessarar löggjafar, um atvinnuréttindi fólks sem kemur t.d. ekki frá EES-svæðinu og fleira í þeim dúr. Við sjáum enga heildarstefnumótun hvað varðar bara innflytjendamál í stóru myndinni.
Stóra myndin er sú að staðan í Evrópu hefur gjörbreyst með stríðinu í Úkraínu. Það er að vaxa upp kynslóð núna sem er í fyrsta sinn að meðtaka fréttir af stríðsrekstri í Evrópu. Þjóðverjar lágu undir ámæli fyrir það hvað þeir eru seinir að taka við sér um vopnaflutninga. Þetta er auðvitað algjörlega ný mynd frá seinni heimsstyrjöld. Þetta er stóra myndin. Um þessa þætti þarf auðvitað líka að ræða. Fyrir þjóð eins og Ísland sem ekki er með her, sem er mjög háð því að stórríkin virði alþjóðalög, sem getur ekki með beinum hætti tekið þátt í stríðsrekstrinum og gerir það vitaskuld ekki, er hér tækifæri til að sýna stuðning, stuðning við málstað Úkraínu og um leið auðvitað annarra flóttamanna, en mér hefur fundist skorta upp á það þegar stjórnarmeirihlutinn talar um það að við horfum á stóru myndina að það sé verið að ræða þessa breyttu heimsmynd, vil ég leyfa mér að segja, sem af stríðinu hefur hlotist.